Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000 73 ~
UMRÆÐAN
Svipaðar raddir hafa heyrst víðar
eins og í Sviss, Nýja-Sjálandi og
Astralíu. Nýlega var sett á laggirnar
nefnd sérfræðinga í Kanada, með
einróma samþykkt þingsins, sem á
að koma með nýjar tillögur í tengsl-
um við fíkniefnabrot. Sömuleiðis má
nefna að hæstirétturinn í Sviss úr-
skurðaði nýverið að e-töflur ættu
ekki að flokkast með hættulegum
efnum og að minni háttar viðskipti
með efnið gætu ekki tahst hættuleg-
ur glæpur. Rétturinn hafnaði því
þeirri kröfu að þyngja bæri níu
mánaða fangelsisdóm íyrh' sölu á
rúmlega 1.300 e-töflum.
Fíkniefni virðast hvarvetna búin
að festa sig í sessi og stjórnvöldum
hefur ekki enn tekist að koma í veg
fyrir útbreiðslu þeirra þrátt fyrir
mikinn viðbúnað löggæsluaðila.
Rannsóknir bæði hér á landi og er-
lendis sýna að þeir sem hafa áhuga
á að nálgast þessi efni segjast geta
það hindrunarlaust þrátt fyrir
bann.
Ljóst er að engin töfralausn
finnst á fíkniefnavandanum en al-
mennt verða stjómvöld að setja sér
raunhæf markmið og leitast eftir
mætti að draga úr þeim skaða sem
ávana- og fíkniefni valda án þess þó
að valda neytendum þeirra meira
tjóni en skaðsemi efnanna gefur til-
efni til. Jafnframt verður stefna
stjórnvalda að vera sjálfri sér sam-
kvæm og byggjast á víðtækum
rannsóknum sem taka á ólíkum
áhrifaþáttum neyslunnar.
Höfundur erdósent í félagsfræði
við Háskóla íslands.
Að treysta vor heit
VIÐ íslendingar
eigum erindi á Þing-
völl á kristnihátíð 1.
og 2. júlí. Við stöndum
á merkilegum tíma-
mótum í lífi þjóðar
okkar. Vegur okkar
hefur vaxið svo í safni
þjóðanna að ljóst er að
tilraunin ísland hefur
heppnast og heppnast
vel. Við stöndum í
góðu áliti meðal þjóð-
anna og erum framar-
lega á mörgum mikil-
vægum sviðum.
Við eigum það er-
indi á Þingvöll að
þakka þann árangur.
„En sá sem hyggst standa hátt
hann gæti sín að hann falli ekki,“
sagði spakur maður. Aðgátin felst í
því að við horfum raunsæjum aug-
um á lán okkar. Spyrjum okkur að
því hverju við eigum það að þakka
sem unnist hefur. Hvort tveggja
mun satt að yfir okkur hefur verið
sérstök heill og blessun sem og að
við búum að mikilvægum kostum.
Margir munu geta tekið undir
það að þrenging okkar í margar
aldir í fátækt, bjargarleysi, ein-
angrun og þrúgun erlends valds
hafi verið þjóðinni þungbær. Hún
vakti henni þó brennandi þrá eftir
upprisu og frelsi sem bjó um sig í
hugum margra en
braust þó fram í
mönnum anda og at-
hafna jafnt og samt.
Hún átti skilið að fá að
rísa. Drottinn unni
henni þess eftir
leyndu ráði sínu, það
er berlegt.
Við eigum gjöfult
land þó ekki grói hér
víðáttumiklir skógar
né akrar. íslensk mold
nær samt að næra
þjóðina og þó við vær-
um fleiri. Hafið er
gjöfult og okkur hefur
auðnast að stunda
fiskveiðar með arði
ólíkt mörgum þjóðum. Fallvötnin
og varminn í iðrum jarðar búa yfir
mikilli endurnýjanlegri og vist-
vænni óbeislaðri orku. Við eigum
Guði þökk að gjalda fyrir þetta
land. Við eigum það erindi á Þing-
völl að bera fram þá þökk. Við bú-
um að góðri og almennri menntun.
Þar lagði kirkjan grunn og studdi
og styður skólana af umhyggju.
Hún ræktaði flestum meir og betur
viljann til náms. Gaf þá ástæðu að
það gerði hvern mann sannari ef
hann lærði og færari til þeirra
verka sem skaparinn hefði treyst
honum til. Hann „blessar iðninnar
sveita“.
Kristnihátíd
Vegur okkar hefur vaxið
svo í safni þjóðanna,
segir Jakob Ágúst
Hjáhnarsson, að ljóst
er að tilraunin Island
hefur heppnast og
heppnast vel.
Mestu varðar þó hvað það er sem
við höfum lært að meta sem dyggð.
Við, börn hins unga lýðveldis, og
kynslóðin á undan okkur höfum
mótast í bjartsýni og samkennd.
Heimur okkar var heildstæður og
tilgangur okkar skýr. Við vorum
börn Guðs og landsins og hvert
annars samherjar. Við skyldum
sækja fram til betri tíðar, efnalegr-
ar og félagslegrar farsældar.
Nú höfum við náð þangað -
flest. Það er hins vegar eitthvað
að búa um sig sem dregur úr sig-
urgleðinni við þúsaldamótin.
Hvað hefur gleymst? Hverju höf-
um við glatað sem við áttum með-
an við vorum ung og glöð? Við
horfum framan í börnin okkar í
leit að svari, en sjáum í andlitum
Jakob Ágúst
Hjálmarsson
þeirra allt of margra ráðvillusvip.
Atferli þeirra sumra hefur yfir sér
svip vonbrigða og sjálfseyðingar.
„Gáðu að Guði, barnið mitt,“
sagði gamla fólkið. Er það ekki tap
okkar að hafa týnt honum? Höfum
við leyft honum að vera allt í öllu?
Það skyldi þó ekki vera að við höf-
um gleyrnt að gá að Guði, Guði
vors lands? Vorum við kannski
farin að halda að hann væri rétt
eins og við hvert og eitt hugsuðum
okkur hann? Héldum við að ef við
hrærðum saman trúarbrögðunum
og hristum í kokkteilhristaranum
okkar gætum við hellt honum á
kaleik okkar og drukkið? Þegar
Móses spurði hann að nafni þá
fékk hann það svar að hann væri
sá sem hann er. Sá er mergurinn
málsins. Guði verður ekki troðið í
okkar form, hvað þá settur í vas-
ann. Hann er sá sem hann er og
verður aðeins þekktur af þeim
sem hann kýs að opinbera sig. Það
er boðskapur trúarinnar að Guð
sé hér og eigi erindi við þig.
Meistarinn er hér og vill finna þig!
Farðu út til móts við hann, farðu
út úr borginni og bænum og
komdu til hans á Þingvöllum þar
sem hann hefur sett þér mót og
finndu hann. Hann mun mæta þér
í múgnum mikla á Þingvöllum ef
þú vilt - og leitar.
Treystu heit þín við hann, litla
þjóð, og þá mun þér áfram farnast
vel, sífellt ganga mót bjartri fram-
tíð!
Höfundur er dómkirkjuprestur
í Reykjavik.
hk.
'.
íg||
.. .. ?.i.
1
sími: 561 6550 Latibær ehf.
gsm: 869 1962 Geirsgata 9
fax: 561 6551 101 Reykjavik
magnus@lazytown.com
100 bestu sœtin á Evrópumóti landsliða í
C1—J njmu til sölu með 25% afsUetti.
lYijggið ijkkur seeti strax í dag. \ | "•fe
Mótið hefst 10. júní
m/tauáklæði
nTTrfmm/lp.ðri
á slitflötum
Rétt verð
kr, 72.000
Nú kr. 54.000.
(;l.n i<m irv tauálil.i’1
kr.U Vf■ i ö Ki. ;$9.90Ó
llo( Sliot
liaudito
\loikinni I • 108 Ritvkjavik
Simi: SH.'i 3500 • l’ax: 533 3510 • wwu.iiiaito.is
Við efcyÖjum við bakið á þér!
Fréttir á Netinu
/fembl.is
^ALLTAF= eiTTH\SAT> A/YTT~