Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Dómari féllst á kröfu bandarfskra stjórnvalda í málinu gegn Microsoft
Gates ítrekar
að fyrirtækið
hafí ekki
brotið lög
Stjórnvöld hafa unnið enn einn áfangasigur-
inn í málaferlunum gegn Microsoft en dóm-
stólar munu halda áfram að fjalla um málið
á næstu misserum. Endanleg niðurstaða
þess kann hins vegar að velta á því hver
verður næsti forseti Bandaríkjanna.
Washington. Redmond. AP, AFP, Reuters.
AÐALFRAMKVÆMDASTJÓRI
hugbúnaðarfyrirtækisins Microsoft,
Steve Ballmer, sagði í gær að ný-
genginn úrskurður bandarískra yfir-
valda gegn fyrirtækinu kæmi til með
að skaða hugbúnaðariðnaðinn í heild.
Bandarískur alríkisdómstóll tók þá
ákvörðun á miðvikudag að fyrirtæk-
inu skuli skipt í tvennt samkvæmt
tillögu alríkisstjórnarinnar og yfir-
valda sautján ríkja í sambandinu.
Ballmer telur að ákvörðunin muni
halda aftur af vexti netverslunar,
koma í veg fyrir nýsköpun og hækka
verð á hugbúnaði. Stjórnarformaður
og einn stofnenda fyrirtækisins, Bill
Gates, heldur því enn fram að fyrir-
tækið hafi ekkert til saka unnið og
heitir því að áfrýja málinu alla leið til
hæstaréttar Bandaríkjanna.
Stjórnvöld hafa fagnað úrskurðin-
um og sagði Janet Reno, dómsmála-
ráðherra Bandaríkjanna, á miðviku-
dag að hann myndi örva samkeppni á
markaði fyrir hugbúnað. Hún sagði
einnig að úrskurðurinn staðfesti að
samkeppnislöggjöf hefði þýðingu
fyrir hugbúnaðariðnaðinn eins og
aðrar greinar atvinnulífsins.
Sagði engin önnur ráð duga
í byrjun apríl komst dómari við al-
ríkisdómstól í Washington að þeirri
niðurstöðu að Microsoft hefði brotið
gegn lögum um hringamyndun, m.a.
með því að gera Explorer netvafrann
að innbyggðum hluta Windows stýri-
kerfisins og með því að beita þving-
unum til að hindra önnur hugbúnað-
arfyrirtæki í því að setja vafra sína á
markað. Úrskurðurinn á miðvikudag
er aðeins nýjasti kaflinn í mála-
ferlum sem hófust með því að
dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna
NATAMA
TÍSKUVÖRWVERSLUN - LAWQAVEQI 87 - SÍMI 511 6665
tmskeLe
AP
Tölvusali í Bremen í Þýskalandi ræsir tölvur sem hann hefur til sölu þar sem Windows 98-stýrikerfið fylgir með
í kaupunum. Neytendur geta í framtíðinni átt von á því að geta í auknum mæli valið hvaða stýrikerfi og hugbún-
aður fylgir með tölvum sem þeir kaupa.
stefndi fyrirtækinu árið 1997. Ekki
sér enn fyrir endann á málinu.
Thomas Penfield Jackson, dómari
við alríkisdómstólinn, rökstuddi
ákvörðun sína á miðvikudag með því
að segja að engin önnur ráð en skipt-
ing Microsoft í tvennt dyggðu til að
koma í veg fyrir samkeppnishaml-
andi framferði fyrirtækisins. „Það er
ástæða til þess að ætla að Microsoft,
sannfært um eigið sakleysi, muni
halda áfram uppteknum hætti og
muni reyna á nýjum mörkuðum það
sem fyrirtækið hefur gert á mörkuð-
um fyrir stýrikerfi og netvafra," seg-
ir í úrskurðinum.
Úrskurðurinn felur í sér að fyrir-
tækið verður þvingað til að greina
milli framleiðslu Windows og annars
hugbúnaðar, þ. á m. Explorer. Verð-
ur Microsoft gert að stofna tvö sjálf-
stæð fyrirtæki um þessa framleiðslu.
Til viðbótar því að krefjast þess að
fyrirtækinu verði skipt felur úr-
skurðurinn einnig í sér að Microsoft
verður að breyta starfsháttum sín-
um. Til dæmis fyrirskipaði dómarinn
að Microsoft gæfi framleiðendum
einkatölva aukið frelsi til að selja
tölvur með ólíkum samsetningum
hugbúnaðar, þ.e. bæði frá Microsoft
og öðrum framleiðendum. Fyrirtæk-
ið hefur hingað til beitt sér gegn
slíku. Einnig er Microsoft skipað að
selja hugbúnað á sama verði til allra
tölvuframleiðenda og að selja eldri
útgáfur Windows á sama verði og
nýrri útgáfur. Búist er við því að
Microsoft verði a.m.k. að fara að
hluta þessara krafna nú þegar, jafn-
vel þótt úrskurðinum verði áfrýjað.
Vilja að málið fari beint til
hæstaréttar
í flestum tilfellum yrði málum af
þessu tagi næst áfrýjað til sérstaks
áfrýjunardómstóls og síðan til
hæstaréttar. Hins vegar hefur
bandaríska dómsmálaráðuneytið
lýst því yfir að það muni óska þess að
málið gangi beint til hæstaréttar
samkvæmt lögum sem heimila slíkt í
samkeppnismálum sem talin eru
hafa mikla þýðingu fyrir efnahagslíf
Bandaríkjanna í heild. Talið er að yf-
irvöld vilji með þessu koma í veg fyr-
ir að málaferlin nú hljóti sömu örlög
og málsókn gegn Microsoft árið
1998. Þá úrskurðaði áfrýjunardóm-
stóll fyrirtækinu í hag. Talið er að
Jackson dómari muni fallast á beiðni
ráðuneytisins en óvíst er að hæsti-
réttur fallist á að taka málið fyrir án
þess að það hafi áður verið afgreitt af
áfrýjunardómstólnum.
Ekki er ljóst hvaða áhrif úrskurð-
urinn gegn Microsoft muni hafa á
hugbúnaðariðnaðinn og neytendur.
Flestir virðast þó vera sammála um
að áhrifin af skiptingu fyrirtækisins í
tvennt yrðu fremur lítil í fyrirsjáan-
legri framtíð. Líklegt er talið að þeir
sem hingað til hafa notað Microsoft-
hugbúnað komi til með að halda
áfram að nota hann. Verð kynni aft-
ur á móti að lækka þegar til lengri
tíma er litið vegna aukinnar sam-
keppni á markaðnum. Þær aðrar
breytingar sem fyrirskipaðar eru á
starfsemi Microsoft munu eflaust
greiða fyrir möguleikum annarra
hugbúaðarfyrirtækja til að koma
vörum sínum á rnarkað. Þannig gætu
neytendur í framtíðinni átt aukið val
um hvers konar stýrikerfi og annar
hugbúnaður er fyrirfram vistaður á
tölvu sem þeir festa kaup á.
Forsetakjör getur haft áhrif
á niðurstöðuna
Talið er að úrslit forsetakosning-
anna sem fram fara í Bandaríkjun-
um í byrjun nóvember muni geta
haft mikil áhrif á framhald málaferl-
anna gegn Microsoft. Frambjóðandi
repúblikana, George W. Bush, sem
talinn er líklegur til sigurs, hefur
sagt að hann sé ósammála túlkun
stjórnvalda á samkeppnisreglunum.
Verði hann kjörinn má hugsanlega
búast við því að stefna alríkisstjórn-
arinnar í málinu muni breytast. En
Microsoft yrði að líkindum áfram að
glíma við ríkin sautján þótt alríkis-
stjómin hætti baráttunni.
Með blaðinu
a morgun
Með blaðinu á morgun
fylgir 28 síðna blaðauki,
Sumarferðir 2000.
3N*tgitaiHbiMfr