Morgunblaðið - 09.06.2000, Blaðsíða 74
- 74 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
Nú er aðeins tæpur
mánuður í að Landsmót
hestamanna hefjist í
Víðidal, svæði
Hestamannafélagsins
Fáks í Reykjavík.
Asdís Haraldsdóttir
spurði Fannar
Jónasson fram-
kvæmdastjóra mótsins
hvernig undirbúningur-
inn gengi.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Skráningu á Lands-
mót lýkur eftir helgi
Fákssvæðið er að taka á sig endanlega mynd fyrir Landsmótið þessa dagana.
...I KAFFIHORNINU
í EVEREST í DAG
Þú kemur í verslun okkar í Skeifunni í
Reykjavík og skoðar úrvalið af útivistarvörum
eða verslar það sem til þarf í ferðalagið.
Sest síðan í kaffihornið okkar yfir kaffibolla
eða LEPPIN drykk, skoðar ferðatilboð og
upplýsingar um áhugaverða staði í tölvunni
okkar (www.nat.is) og færð útprentað yfirlit
um ferðaáætlun þína. Einfalt og þægilegt
og ferðalagið getur hafist.
- Alltaf heitt á könnunni
Skeifunni 6
Reykjavik • Simi 533 4450
ATravel Café/Ferðakaffi (www.nat.is) eru veittar
upplýsingar um ferðaáaetlanir íslenskra
samgöngutækja, gistingu, afþreyingu,
áhugaverða staði, hestaleigur, veiði, ferðatilboð
og annað sem við kemurferðaþjónustu.
Upplýsingarnar eru á íslensku og ensku og
þar má finna um 14.000 síður af
ferðaupplýsingum.
„VTÐ teljum að búið sé að ganga frá
ölium meginatriðum undirbúnings-
ins, en gerum okkur grein fyrir að
ýmislegt mun koma upp alveg fram á
síðasta dag,“ sagði Fannar Jónasson.
„Það eru óhemju mörg atriði sem
taka verður tillit til en við sjáum þó
ekki fram á nein vandkvæði."
Þráðlaust tölvukerfi á svæðinu
Fannar segir að samið hafi verið
við Þjóðverjann Lutz Lesener um að
setja upp tölvukerfi fyrir Landsmót-
ið. Hann hefur hannað kerfi sem not-
að var á síðasta Heimsmeistaramóti
sem haldið var í Þýskalandi í fyrra.
Samstarfsnefnd sem fjallað hefur um
sameiginlegt tölvukerfi fyrir allt
mótahald sem snýr að hrossum hér á
landi hefur skoðað kerfið og líst vel á
þann grunn sem kominn er. Fannar
segir að jafnvel verði hægt að nota
hann til að byggja upp framtíðar-
tölvukerfi. Nú er unnið að því að ís-
lenska þetta kerfi, en Lutz mun sjálf-
ur koma hingað til lands við þriðja
mann til að setja upp kerfið fyrir
Landsmótið og sjá um það.
Tölvukerfið verður miðlægt og
notaðar verða fistölvur og er búið að
semja við Nýherja um að koma upp
þráðlausum búnaði. Magnarar verða
settir upp á nokkrum stöðum og upp-
lýsingum safnað í eina miðlæga stöð.
Kerfið býður meðal annars upp á
myndbirtingar og form til útprent-
unar á dómaskrám og öðrum upp-
lýsingum. Stefnt er að því að móts-
gestir geti nálgast dómaskrár með
skjótum og auðveldum hætti.
Stjómstöð verður í sérstöku húsi
við Fáksheimilið. Þar verður aðsetur
framkvæmdastjómar og lykiimanna.
Góðir vellir og
aðstaða fyrir hross
Fannar sagði að búið væri að vinna
ötullega að framkvæmdum við sjálft
mótssvæðið. Á þeim kynbótasýning-
um og mótum sem haldin hafa verið
hafa komið fram ýmsir agnúar sem
nú er búið að sníða af eða lagfæra.
Hann segir að það hafi verið gott að
fá svolitla reynslu á svæðið áður en
tii kastanna kæmi og ekkert benti nú
til annars en að vellimir yrðu mjög
góðir á mótinu.
Aðspurður um aðstöðu fyrir sýn-
inga- og keppnishross sagði Fannar
að margir einstaklingar hefðu þegar
útvegað sér sjálfir pláss, bæði á
Fákssvæðinu og nærhggjandi hest-
húsahverfum. AJlir sem á því þurfa
að halda munu fá inni fyrir hross sín í
hesthúsum á Fákssvæðinu. Einnig
hefur Gunnarshólmi verið leigður
sem beitarsvæði fyrir þá sem taka
þátt í hópreiðinni eða koma ríðandi.
Þar verður hægt að koma hrossum á
beit eftir sýningu óski menn að
sleppa hrossum frekar í haga en hafa
þau á húsi. Mögulega verður einnig
hægt að fá aðstöðu á Blikastöðum.
Þá hefur verið sóst eftir landi austan
við Norðlingabrautina, sem einnig
væri hægt að nota sem tjaldsvæði.
Mótið er ekki byggt upp á sjálf-
boðavinnu, eins og oft hefur verið.
Því hefur verið samið við verktaka og
félagasamtök um að sinna ýmsum
störfum. Björgunarsveitir munu til
dæmis sjá um gæslu og miðasölu og
samið hefur verið við Securitas um
þrif og öryggisgæslu svo dæmi sé
tekið. Reiknað er með að einn aðili
muni sjá um veitingar á svæðinu.
Lögð verður áhersla á fjölbreyttar
veitingar á góðu verði að sögn Fann-
ars. Boðið verður upp á veitingar í
Fáksheimilinu og einnig verður
Reiðhöllin lögð undir veitingasölu.
Þar verða einnig dansleikir á föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Markaðstorg og
landbúnaðarsýning
Sölubásar verða settir upp á svo-
kallað Markaðstorg í nágrenni Fáks-
heimilisins. Fannar segir að margir
hafi sýnt áhuga á að kynna vörur sín-
ar og selja þar. Hann segir þetta
auka fjölbreytni mótsins og gera
mannlífsstemmninguna betri. Einn-
ig sagði hann að mikill áhugi væri á
að auglýsa í mótsskránni. og við vell-
ina.
„Við leggjum Uka áhersla á að
tengja saman Landsmótið og Land-
búnaðarsýninguna sem haldin verð-
ur í Laugardal sömu helgi. Því er
upplagt fyrir landsbyggðarfólk að
koma til höfuðborgarinnar og slá
tvær flugur í einu höggi. Samið hefur
verið við Strætisvagna Reykjavíkur
um að leiðir 110 og 10 stoppi við
Reiðhöllina, en þessir vagnar fara
um Suðurlandsbraut og stoppa einn-
ig beint fyrir ofan Laugardalshöll-
ina.“
Skráningu að ljúka
Næstkomandi þriðjudag, 13. júní,
lýkur skráningum í gæðingakeppni,
kappreiðar, töltkeppni og ræktunar-
bússýningar Landsmótsins. Skrán-
ingar kynbótahrossa koma allar á
tölvutæku formi frá Bændasamtök-
unum jafnóðum og kynbótadómum
lýkur.
Fannar sagði að erfitt væri að átta
sig á hvort áhugi á Landsmótinu
væri mikill eða lítill og hversu margir
mundu sækja mótið. Hins vegar sé
ijóst að áhugi keppenda og sýnenda
er gífurlega mikill. Það sýni sig á úr-
tökumótum sem haldin eru víða um
land þessa dagana og ekki síður á
kynbótasýningunum, en annar eins
fjöldi af kynbótahrossum hefur
aldrei verið sýndur.
„Mikilvægast er að þeir sem að
mótinu standa geri sitt besta til að
gera mótið áhugavert og standi vel
að framkvæmdum. En það getur
enginn spáð um aðsókn. Allt getur
haft áhrif, til dæmis veðrátta. En allt
stefnir í að þetta geti orðið glæsilegt
mót.“