Morgunblaðið - 09.06.2000, Page 12

Morgunblaðið - 09.06.2000, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þjónustusamningur um endurhæfíngu gerður á Landspftala - háskólasjúkrahúsi Rekstrarlegt sjálfstæði verður meira en áður ÞJÓNUSTUSAMNINGUR um endurhæfíngu á Landspítala - há- skólasjúkrahúsi var undirritaður í gær milli framkvæmdastjórnar spítalans og rekstrarstjórnar end- urhæfingarþjónustunnar, en með samningnum eru stigin ný skref í átt að breyttri fjármögnun endur- hæfingarstarfsemi sjúkrahússins. Á blaðamannafundi þar sem þjón- ustusamningurinn var undirritaður í gær kom fram að með samningn- um sé settur rammi utan um núver- andi rekstur og jafnframt gert ráð fyrir aukinni starfsemi. Rekstrar- legt sjálfstæði verði meira en áður hafi verið, en stjómunarleg sam- skipti við framkvæmdastjórn verði þó óbreytt og með sama hætti og hjá öðrum sviðum sjúkrahússins. Með samningnum er lagður grunnur að sameiningu endurhæf- ingarþjónustu hins nýja sameinaða sjúkrahúss, en hann tekur til 200 starfsmanna í 140 stöðugildum og nær til endurhæfingarstarfsemi á mörgum starfsstöðvum sjúkra- hússins, svo sem á Grensásdeild, við Hringbraut, í Fossvogi, Landakoti og í Kópavogi. Samningurinn tekur til ársins 2000 og 2001 og hljóðar rekstrar- áætlun vegna ársins í ár upp á 490 milljónir kr. Ný greiðsluviðmiðun er tekin upp vegna reksturs legu- deilda og verður 70% upphæðarinn- ar föst greiðsla en 30% afkasta- tengd. Gert er ráð fyrir að á samningstímanum verði unnið að frekari þróun slíks greiðslukerfis og að þjónusta sjúkraþjálfara og iðju- þjálfa sem fram fari á öðrum sviðum verði seld og um það gerðir samn- ingar við viðkomandi svið. Megin- áherslan verði á þjónustu við bráða- deildir spítalans, en einnig verði lögð áhersla á bætta þjónustu með aukinni starfsemi dagdeilda og göngudeilda, auk þess sem lögð verði áhersla á kennslu og rann- sóknir í endurhæfingu, en mann- auður endurhæfingarþjónustunnar sé mikilvægasta auðlind hennar. Magnús Pétursson, forstjóri Morgunblaðið/Golli Frá fundinum þar sem samningurinn var undirritaður. Talið frá vinstri: Jóhannes Gunnarsson, lækninga- forstjóri Landspítala - háskólasjúkrahúss, Magnús Pétursson, forstjóri sjúkrahússins, Guðlaug Rakcl Guðjóns- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri endurhæfingarsviðs, Guðrún Siguijónsdóttir, framkvæmdastjóri sjúkra- þjálfunar við Hringbraut, Kalla Malmquist, forstöðusjúkraþjálfari í Fossvogi og Stefán Yngvason, yfirlæknir endurhæfingarsviðs. Landspítala - háskólasjúkrahúss, sagði að með gerð þessa samnings yrðu tiltekin tímamót í starfsemi sjúkrahússins. Samningurinn hafi verið um ár í vinnslu. Hann hafi bundið vonir við að gerð hans gæti gengið hraðar, en breytingar af þessu tagi taki sinn tíma. Endur- hæfing sé vaxandi verkefni og það sé aukinn skilningur á því að það skipti miklu máli fyrir spítalann að geta fækkað legudögum og fyrir þjóðfélagið að fólk komist sem fyrst til starfa sinna aftur eftir veikindi og slys. Með samningnum taki end- urhæfingarþjónustan meiri ábyrgð á rekstri á sínu sviði, auk þess sem öll endurhæfingarstafsemi sjúkra- hússins sé sameinuð. Magnús nefndi einnig að um miðja vikuna hefðu Landspítalinn - háskólasjúkrahús, Reykjalundur og Heilsustofnunin í Hveragerði gert með sér samkomulag um samstarfs- ráð um endurhæfingu, en markmið- ið með samkomulaginu væri að efla og samhæfa endurhæfingarstarf- semi þessara stofnana. Málþing um endurhæfingu í gær var einnig haldið málþing um endurhæfíngu á vegum Land- spítala - háskólasjúkrahúss, þar sem meðal annars var kynnt skýrsla þverfaglegs hóps um stefnumótun í endurhæfingu á íslandi. Þar er lögð mikil áhersla á að stjórnvöld hafi heildarsýn yfir málaflokkinn og verkaskipting verði vel skilgreind. Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, um öryggi í Hvalfjarðargöngum Banna á flutning á bens- íni og gasi um göngin GÍSLI Gíslason bæjarstjóri á Akra- nesi og stjórnarformaður Spalar sem á og rekur Hvalfjarðargöng, telur að banna eigi flutning á bens- íni og gasi um göngin, en olíuflutn- ingar um göngin hafi aukist mjög frá opnun þeirra.„Ég held að öllum sé það nokkuð ljóst að ef eitthvað myndi bregða útaf með bensínfarm eða gasfarm myndi það ekki skipta miklu máli hvaða brunavarnir væru fyrir hendi. Þær myndu beinlínis ekki ráða við slíka uppákomu,“ seg- ir Gísli. Lögreglustjórinn í Reykjavík setur reglurnar Gísli segir litla hættu stafa af al- mennri umferð og öryggiskerfi ganganna ráði vel við hana. Öðru máli gegni um flutninga á eldfimum efnum. Því telur Gísli brýnt að tak- marka þá umferð enn frekar. Þrjár leiðir komi helst til greina. Hægt sé að takmarka flutningana við þann tíma þegar umferð er minnst um göngin, flutningarnir gætu farið fram á nóttunni, en sjálfur er Gísli á þeirri skoðun að banna eigi alfarið flutning á gasi og bensíni um göng- in. Þetta sé hinsvegar ekki útrætt innan stjórnar Spalar og það sé lög- reglustjórinn í Reykjavík sem setji reglur um umferð í göngunum. Ekki meiri hætta en af öðrum flutningi Knútur Hauksson, framkvæmda- stjóri Olíudreifingar hf., segir að fyrirtækið uppfylli allar öryggis- kröfur og olíuflutningarnir séu ekki hættulegri en flutningar á öðrum vörum s.s. málningu og gaskútum sem fari um göngin í venjulegum flutningabílum. Ef banna eigi flutn- ing á bensíni og gasi um Hvalfjarð- Breytingar á umferð um Hvalfjörðinn með tilkomu jarðgangnanna þús.bílar 1200 Heildar- umferð W 1997 □ 1999 argöng þá hljóti líka að þurfa að fylgjast með nærri öllum öðrum flutningi í gegnum göngin. Hann minnir á að eldsvoðinn í jarðgöng- unum undir Mont Blanc-fjall í Frakklandi í fyrra, þar sem 42 týndu lífi, hafi byrjað í flutningabfl sem flutti hveiti og smjörlíki. Flutn- ingabílar Olíudreifingar séu nýlegir bílar og því minni hætta á eldsvoða í þeim heldur en í mörgum þeirra flutningabíla sem fari Hvalfjarðar- göng. Meiri slysahætta á þjóðvegunum Knútur segir að aldrei hafi orðið alvarlegt slys í olíuflutningum og ef flutningar verði bannaðir um Hval- fjarðargöng verði það ekki endilega til þess að draga úr slysahætttu. „Hættan er í beinu hlutfalli við vegalengdina sem ekin er og það er jafnvel meiri möguleiki á slysi á þjóðveginum en í Hvalfjarðargöng- um,“ segir hann. Knútur segir að ef olíuflutningar verði bannaðir um Hvalfjarðargöng þá verði olíuflutningabílarnir að aka fyrir Hvalfjörð. Flutningar á næt- urnar komi ekki til greina þar sem móttakendur geta ekki tekið á móti farminum að næturlagi. „Við mun- um heldur ekki sigla með þetta upp á Akranes eins og bæjarstjórn Akraness er örugglega að vonast eftir,“ segir Knútur. Már Sigurðsson, deildarstjóri dreifingardeildar Skeljungs, tekur í sama streng og segir að olíuflutn- ingar séu ekki hættulegustu flutn- ingarnir sem fari um Hvalfjarðar- göng. Mikið sé flutt af hættulegum efnum með öðrum flutningabflum sem jafnvel séu ekki með merki sem gefa til kynna hvers kyns efni þeir flytja. Flutningar um göngin þegar takmarkaðir í gildi eru reglur frá 1998 sem takmarka flutning á hættulegum efnum um Hvalfjarðargöng á helstu álagstímum. Samkvæmt þeim má ekki flytja hættulegan farm um göngin frá föstudagsmorgni til mið- nættis á sunnudögum en bannið nær yfir lengri tíma um páska, hvítasunnu og verslunarmanna- helgi. Gísli segir að engar alþjóðleg- ar reglur séu í gildi um öryggismál í jarðgöngum. Við hönnun Hvalfjarð- arganga hafi verið tekið mið af norskum reglum en Gísli segir að Spölur hafi gengið enn lengra í ör- yggismálum en norsku reglurnar krefjist. Nú sé unnið að því að kaupa eftirlitsmyndavélakerfi í göngin sem bæta muni öryggi ganganna enn frekar. Telur ekki ástæðu til að banna flutning um göngin Sturla Böðvarsson, samgöngu- málaráðherra, sagði á Alþingi í vet- ur að ekki væri ástæða til þess að banna flutninga á eldfimum efnum um Hvalfjarðargöng. Dæmi væru til erlendis um að slíkir flutningar væru bannaðir, en það væri í göng- um þar sem umferð er 5-10 sinnum meiri en um Hvalfjarðargöng. Erf- itt gæti orðið að koma í veg fyrir flutning á eldfimum efnum um göngin, bensín og gas væru ekki einu hættulegu efnin sem flutt væru um göngin og ef framfylgja ætti reglunum þyrfti að hafa eftirlit með öllum flutningabílum sem um þau færu. Þetta kom fram í svari ráðherrans við fyrirspurn Guðjóns Guðmundssonar alþingismanns. Glannalegir flutningar Guðjón taldi flutninga á eldfim- um efnum um Hvalfjarðargöng var- hugaverða. Sérstaklega væru þó glannalegir flutningar á þeim 180 tonnum af própangasi sem árlega eru flutt frá Straumsvík til Grund- artanga. Guðjón líkti flutningi eld- fimra efna um göngin við rússneska rúllettu og taldi ástæðu til að banna alfarið flutninga á bensíni og gasi um göngin. Vegurinn fyrir fjörðinn væri greiðfær og því engin ástæða til að taka óþarfa áhættu, eitt óhapp gæti valdið óbætanlegum skaða. Ef ekki yrði lokað fyrir þessa flutninga þá ætti a.m.k. að banna aðra umferð um göngin meðan á þeim stæði. Skýrsla væntanleg Sturla sagðist bíða eftir skýrslu frá OECD sem væntanleg er fyrir árslok, en stofnun hefur á undan- förnum árum unnið að viðamiklu verkefni um flutning hættulegra efna í jarðgöngum. Ef ástæða þætti til mætti vel hugsa sér að settar yrðu strangari reglur hér á landi. Búast má við umferðartöfum Enginn sér- stakur við- búnaðurá tjaldstæð- unum BÚAST má við nokkm-ri umferð ferðamanna til og fi-á borginni um hvítasunnuhelgina og vill Karl Stein- ar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn beina því til ferðalanga að þeir sýni þolinmæði og tillitssemi á álagstím- um. Sunnanlands verða tjaldstæðin á Laugarvatni og í þjóðgarðinum á Þingvöllum opin og sama má segja um tjaldstæðin á Akureyri en enginn sérstakur viðbúnaður verður á þess- um stöðum vegna helgarinnar. Tjaldstæðin voru opnuð í síðustu viku og sagði Kristín Hólmgeirsdóttir í Tjaldmiðstöðinni á Laugarvatni að þá hefðu milli 30 og 40 manns gist þar í tjöldum en flestir þó í tjaldvögnum. „Það er mikið búið að hringja og spyrjast fyrir vegna helgarinnar en það er ekkert að marka það,“ sagði hún. „Við tökum frá tjaldstæði íyrir hópa en ekkert hefur enn verið pant- að fyrir þessa helgi. Ég er samt að vonast eftir að þetta verði svona eins og verslunarmannahelgi eða eins og fyrsta helgin í júlí er vanalega hér hjá okkur. Við erum tilbúin að taka á móti fólki innan skynsamlegra marka.“ Sigurborg Rögnvaldsdóttir land- vörður á Þingvöllum sagði að búið væri að opna tjaldstæðin en enginn sérstakur viðbúnaður yrði þar um helgina. „Tjaldstæðin eru sæmilega gróin en við erum ekki með neina dagskrá ennþá, við erum svo ný kom- in til starfa og gönguferðimar því ekki byrjaðar hjá okkur,“ sagði hún. „Við erum að setja allt í gang og allir eru: velkomnir.“ Á tjaldstæðinu á Akureyri hafa engin tjaldstæði enn verið tekin frá fyrir helgina enda er spáin ekki góð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.