Morgunblaðið - 09.06.2000, Side 24

Morgunblaðið - 09.06.2000, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000 viðskipt: MORGUNBLAÐIÐ Fj árfestingarfélafflð Gilding stofnað Stofnhlutafé 3,5 milljarðar Morgunblaðið/Jim Smart Ámi Oddur Þórðarson, Andri Sveinsson, Magnús Magnússon, Þórður Magnússon og Bjarni Þórður Bjarnason verða allir starfsmenn fjárfesting- arfélagsins Gildingar. Gunnar og Sigurður Garðar Jóhannssynir selja í Fdðurblöndunni GB fóður og Kaupþing með 49,34% hlut STOFNUN fjárfestingarfélagsins Gilding var kynnt í gær. Stofnhlutafé félagsins er 50 milljónir evra eða um 3,5 milljarðar íslenskra króna. Ekki er gefið upp hvaða fjárfestar standa að félaginu en nöfn helstu hluthafa verða birt innan nokkurra vikna þeg- ar félagið hefur starfsemi og eignar- hald í því verður fullmótað. Starfandi stjórnarformaður Gild- ingar er Þórður Magnússon, fyrr- verandi framkvæmdastjóri fjármála- sviðs Eimskips. Aðrir starfsmenn Gildingar eru Andri Sveinsson, fyrr- verandi forstöðumaður fyrirtækja- ráðgjafar Búnaðarbankans Verð- bréfa, Arni Oddur Þórðarson aðstoðarframkvæmdastjóri mark- aða & fyrirtækjaráðgjafar Búnaðar- bankans Verðbréfa, Bjarni Þórður Bjarnason af verðbréfasviði Kaup- þings og Magnús Magnússon af fyr- irtækjaviðskiptasviði Búnaðarbank- ans. Að sögn Þórðar verða starfsmenn l'élagsins um 8-10 talsins þegar það hefur starfsemi en það verður til húsa að Borgartúni 24. Allir stofnfjárfestar innlendir aðilar Fjárfest verður bæði í skráðum og óskráðum félögum innanlands sem utan í nánu samstarfi við banka og verðbréfafyrirtæki. Fjárfestingar- FRAMKVÆMDIR við nýja bygg- ingu fyrir vélasvið og hjólbarðadeild Heklu að Kiettagörðum 8-10 í Reykjavík er að hefjast. Nýbyggingin er stálgrindahús og verða í húsinu vélaverkstæði, sýningasalur og skrif- stofur. Byggingin er 4.358 fermetrar og um 27.000 rúmmetrar á steyptum sökklum. Húsinu fylgir 19.000 fer- metra lóð. Verkið var boðið út og bár- ust 4 tilboð. Að lokinni yfirferð tilboða var gengið til samninga við lægst- bjóðanda, sem var Vélsmiðjan Gils ehf. í Kópavogi. Aætlað er að verktaki skili húsinu fullbúnu 1. maí 2001. stefna félagsins verður sú að inn- lendar fjárfestingar nema 40-60% og svipað hlutfall verður á fjárfesting- um annars staðar í Evrópu. Þrjár vikur frá ákvörðun um stofnun Gildingar Að sögn Þórðar er hlutafjársöfnun ekki lokið hjá Gildingu en mikill áhugi sé hjá fjárfestum á að koma þar inn. Þeir hluthafar sem eru stofnfjárfestar félagsins eru allir innlendir en Þórður útilokar ekki að erlendir aðilar eigi eftir að koma að félaginu auk þess sem hlutafé þess verði aukið. Hann tók fram á blaða- mannafundi sem haldinn var í gær að Eimskip ætti engan hlut í Gildingu og kæmi hvergi að stofnun félagsins. Hann segir að ákvörðunin um að stofna félagið sé þriggja vikna gömul en að sjálfsögðu hafi þeir sem standa að félaginu haft ýmsar hugmyndir um svipaða og sambærilega stai'f- semi. „Félagið verður virkur þáttakandi á íslenskum hlutabréfamarkaði með megináherslu á nýsköpun og þátt- töku í umbreytingu á fyrirtækjum á markaði með virku eignarhaldi. Það hefur orðið mikil breyting á þessum markaði á undanförnum árum og við sjáum miklar breytingar framundan sem við horfum til,“ segir Þórður. Að sögn Þórðar er Gilding fjár- Hekla byggir við Klettgarða Ráðgjafar Heklu við smíði hússins eru Verkfræðistofa Sigurðar Thor- oddsen hf., sem annast verkefnis- stjómun, burðarþol, lagnir og loft- ræstingu. Húsið er teiknað af Sigríði Sigþórsdóttur arkitekt, Vinnustofu hagslega sterk allt frá byrjun og ger- ir það félaginu kleift að taka þátt í stórum verkefnum og koma víða að. Stefnt er að virku eignarhaldi í inn- lendum fyrirtækjum en eingöngu þátttöku í fyi'ú’tækjum í Evrópu. „Þetta er sérhæft fjárfestingarfélag sem starfai- með fyrirtækjum og fjármálastofnunum að fjárfestingar- verkefnum á sviði nýsköpunar og umbreytingar. Þetta er þekkingar- fyrirtæki á sviði fjárfestinga og það mun ekki veita neina fjármálaþjón- ustu og er þar með hvprki banki né verðbréfafyrirtæki. Við áætlum og erum sannfærðir um að við munum ná góðu samstarfi við allar banka- og fjármálastofnanir á landinu. Og að við munum taka þátt í, með bönkun- um, áhættudreifingu og koma að ýmsum verkefnum sem verið er að vinna að. Því er þannig háttað, meðal annars í Skandinavíu og víðar í Evrópu, að bönkum er ekki heimilt að taka þátt, nema að mjög takmörk- uðu leyti, í beinni fjárfestingu í at- vinnulífinu í einstökum félögum. Þá er gjama leitað til sérhæfðra fjár- festingarfélaga á borð við Gildingu til að koma að málum. Gilding mun leggja áherslu á að ákvörðunartaka geti verið skjót hjá félaginu og við komið hratt að málunum því hlutirn- ir gerast oft mjög hratt,“ segir Þórð- arkitekta ehf., og rafteikningar eru í höndum Rafteikningar hf. Með nýbyggingunni gjörbreytist aðstaða vélasviðs og hjólbarðadeild- ai*, sem í dag eru staðsett í húsnæði Heklu á Laugavegi, og er núverandi aðstaða þröng og skorðuð með tilliti til vaxtar. í fréttatilkynningu kemur fram að vélasvið Heklu hefur umboð fyrir Scania-vörubfla, Caterpillar- vinnuvélar, lyftara og skipavélar og MaK-skipavélar og annast sölu og þjónustu fyrir þessi tæki. Hjólbarða- deild Heklu er með umboð fyrir Goodyear. BRÆÐURNIR Gunnar og Sigurð- ur Garðar Jóhannssynir, og fjöl- skyldur þeirra, hafa selt mest allt. hlutafé sitt í Fóðurblöndunni hf. Kaupandi hlutafjárins er GB fóður ehf. og Kaupþing hf. Um er að ræða 49,34% eignarhlut, sem er að nafnverði 217,1 milljón krónur. Við- skiptin voru á genginu 2,5 og er hluturinn því seldur á 542,75 millj- ónir króna sem er talsvert hærra en síðustu viðskipti á Verðbréfa- þingi íslands með félagið semvom á genginu 2,12. Eignarhluti GB fóð- urs ehf. í kaupunum er 16,45%, að nafnverði 72,4 milljónir króna, og eignarhluti vogunarsjóðsins GÍR, sem er í vörslu Kaupþings í New York, 32,89%, að nafnverði 144,7 milljónir króna. Hvorugt félagið átti bréf í félaginu fyrfr. Bjarni Pálsson nýr framkvæmdastjóri GB fóður ehf. er í eigu feðganna Páls Ólafssonar og Bjarna Pálsson- ar frá Brautarholti á Kjalarnesi. Gunnar Jóhannsson, núverandi for- stjóri Fóðurblöndunnar, mun starfa áfram hjá félaginu en Bjarni Páls- son mun taka við sem fram- kvæmdastjóri. Vegur Fóðurblöndunnar á verð- bréfamarkaði hefur farið versnandi en félagið fór af Aðallista niður á Vaxtalista árið 1998. í fréttatil- kynningu frá Kaupþingi segir að í ljósi fyrirsjáanlegra breytinga með inngöngu í NOREX, samstarf nor- rænna kauphalla, hefði vægi fé- lagsins á verðbréfamarkaði minnk- að enn. Kaupþing kemur að málinu með tvennum hætti. Fyrirtækið mun hafa umsjón með fjármögnun hluta af kaupunum auk þess sem Kaup- þing var ráðgefandi við kaupin. Kaupgengið í þessum viðskiptum var 2,5 sem er talsvert hærra en síðasta viðskiptaverð á Verðbréfa- þingi Islands. Stefnt að afskráningu á VÞÍ Til stendur að gera yfirtökutil- boð í öll útistandandi bréf félagsins og afskrá það af Verðbréfaþingi ís- lands. Gunnar Jóhannsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið að sala þeirra bræðra og fjölskyldna þeirra hefði ekki verið ígrunduð í langan tíma. Þeir hefðu hins vegar fengið tilboð sem þeir hefðu einfaldlega tekið. Fyrsta skrefið hefði hins vegar ver- ið tekið þegar félagið hefði verið sett á markað fyrir nokkrum árum síðan. Hann sagði að þar sem ekki hefði verið sjáanlegt að aðrir úr fjölskyldunni kæmu inn í fyrirtækið þá hefði verið ljóst að þetta myndi gerast einhvern tímann. Þeir hefðu verið sáttir við það tilboð sem þeir fengu og því ákveðið að slá til. Gunnar sagði að hjá fyrirtækinu störfuðu kringum 25 starfsmenn og að hann ætti ekki von á að nokkur breyting yrði þar vegna þessa. Gunnar og Sigurður Garðar keyptu meirihluta í Fóðurblönd- unni hf. á árinu 1984. ur. Nýbygging vélasviðs Heklu að Klettagörðum 8-10, sem tekin verður í notkun að ári. EM CCnil I fAIAf Tippaðu á feílcf í Evrópukeppni iandsiiða Það eru tugir milljóna f pottinum og röðin kostar aðeins 10 kr. '»,i Sjtt 'it iit wjr yfijjf éééé %%%% %%%%% %'é %%%%%%% % %'é'é% ééé ééé , é'éééé Imí -Lm tm tm Wf %sr Wr w W W? ’é é é é é »lf é ééé ééééé ééééé éééééé éééééé & éé éééééééééééé é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é w é é % é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é é _ éééééé éééééé é é é é »1* »i* é __ & é é Í9í í»i Sjti 1»1 ífti 1*! 1*1 íia 1*1 íia tii 1»,! 'ju é é é é ééé Tippaðu í næsta lottókassa fyrir kl. 16,00 á morgun laugardag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.