Morgunblaðið - 09.06.2000, Síða 69

Morgunblaðið - 09.06.2000, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000 69 - starfaði hann að iðn sinni fyrir fé- lagið. Hann sat í stjórn félagsins en hafði engin afskipti af fjármál- um þess og fullyrðir að hann hefði ekki haft hugmynd um að fyrir- tækið skuldaði neina vörsluskatta. Hann spurðist fyrir um stöðu fjár- mála hjá félaginu og fékk þau svör að allt væri í lagi. Pað hafi ekki verið fyrr en löngu eftir að hann var hættur afskiptum af fyrirtæk- inu, löngu var búið að taka félagið til gjalþrotaskipta og loks rann- sókn hafin hjá skattyfirvöldum, að hann hafi verið upplýstur um van- skilin. Er og ekki að sjá að inn- heimtumaður ríkissjóðs hafi gert neinn reka að innheimtu vanskila- gjaldanna, þrátt fyrir meint ára- löng vanskil fyrirtækisins. Skjólstæðingur minn, sem sam- kvæmt þessu gerði sér enga grein fyrir því að hann hefði nokkuð af sér gert og er sómakær fjölskyldu- maður, var dæmdur í 45 daga skil- orðsbundið fangelsi, og til að greiða kr. 3.300.000,- í sekt innan 4 vikna frá dómsuppsögu, en sæta ella fangelsi í 75 daga! Skuldafangelsi Fésektir í málum sem þessum eru yfirleitt svo háar að aðeins er á færi efnamanna að greiða þær. Hinir efnaminni eru settir í fang- elsi til þess að sitja af sér sektirn- ar. Yar vilji til þess að taka upp á ný skuldafangelsi á íslandi? Mér er það mjög til efs að menn hafi al- mennt gert sér grein fyrir þessum harkalegu afleiðingum löggjafar- innar. Ríkisbókhald ekki gegnsætt Meðal mikilvægustu sönnunar- gagna í málum af þessu tagi eru útskriftir úr ríkisbókhaldi um álögð gjöld og innborganir. Oftar en ekki eru þetta þau gögn sem ákæra er byggð á hvað fjárhæðir varðar og eru málin oft mjög flókin tölulega. Vanskilatímabil geta ver- ið löng og mjög miklar hreyfingar á reikningum. Fyrirtækin, sem um ræðir, eru oft löngu gjaldþrota þegar komið er að rannsókn og ákæru í þeim, og bókhaldsgögn þeirra því ekki aðgengileg. Petta þekkja allir vel sem að þessum málum koma. Af hálfu skjólstæð- ings míns var því haldið fram í máli þessu að framlögð gögn úr bókhaldi ríkisins hafi alls ekki ver- ið skýr og glögg, m.a. um það hvernig greiðslum gjaldanda var ráðstafað, sem gat skipt sköpum fmrAttalus piasthúðun - Allur véla- og lækjabúnaður - Vönduð vara - góð verð UMRÆÐAN fyrir þá. Ríkisbókhaldið uppfylli því alls ekki m.a. kröfur bókhalds- laga um gagnsæi og skýrleika. Sökum þessa var því miður ails ekki hægt að vera viss um að skuldin sem ákært var út af hafi í raun verið rétt. Hvernig á löggjöf um þessi efni að vera? Ég er þeirrar skoðunar að refsi- lög eiga að vera þannig úr garði gerð, að þau krefjist ásetnings til brots eða stórfellds gáleysis til þess að til refsingar komi. Þessu er hægt að lýsa svo, að krafa sé gerð til þess að mönnum sé kunnugt um það þegar þeir brjóta af sér. Lögin eiga og að gefa dómurum svigrúm til þess að meta hvert til- felli fyrir sig þannig að viðurlög verði í samræmi við atvik máls og allar kringumstæður. Pessi lög uppfylla ekki þessi skilyrði, heldur skylda þau dómara til að dæma menn „á línuna" til þess að greiða í sekt sem lágmark tvöfalda og allt að tífalda þá upphæð, sem hlutafé- lag skilar ekki til innheimtumanns Ríkissjóðs, eða fara ella í skulda- fangelsi. Að minnsta kosti þarf að nema á brott úr löggjöfinni lág- markssektina. Fáir vilja af því vita að fólk sem veit ekki til þess að hafa nokkuð af sér gert, þurfi að sæta fangelsi. Ein helsta krafa réttarríkis er sú að menn séu ekki dæmdir saklausir í fangelsi. Ég fæ ekki annað séð en að í raun sé þessi mikilvæga grunnregla brotin hér á landi að því leyti sem að framan hefur verið rakið. Höfundur er lögmaður í Reykjavík. AZINC Menopause —^ Sérstök blanda bætiefna: • Þorskalýsi • Kvöldvorrósarolía • Soja lecitin • Kalk Fæst í apótekum -Betakarotfn Arkopharma ■ E-vftamfn •Zink Dæmi um gæði www.m bl.l is Alltafferskt H '\Wl : 'éf ■ I 1 • SP ^ J 7« * I tót 1 if/ J w?-' . A Wk iJll 9 % . 1 1 4 v| ÉffTú -VWm W Sl'''^rs4r & . ka^n>ar rfMBMtlr / , Wj M1 j 1 # , JÉí^tÍPÉÉí Éá[
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.