Morgunblaðið - 09.06.2000, Page 87

Morgunblaðið - 09.06.2000, Page 87
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2000 87 Tónlistarhátíðin í Reykjavík er nú um helgina Það verður ekki svona friðsælt ura að litast í Laugardalnum um helgina. Draumadagar í dalnum EFTIRVÆNTINGIN liggur í loftinu enda eru stærstu tónleikar Islandssögunnar rétt handan við hornið. Rokkarar, popparar, rapparar, raftónlistarmenn og allir hinir sjást gleiðbrosandi um gjörvalla borg og telja klukkustundirnar sem eru að opnun hátíðarinnar. Undirbúningur fyrir þessa miklu tónleikaveislu hefur staðið yfir lengi og nær nú hátindi sínum enda ekki seinna vænna, Tónlistarhátíðin í Reykjavík er núna um helgina. Laugardalurinn allur er heimkynni hátíðarinnar og munu tónarnir óma frá Laugardalshöllinni, skautahöllinni og í stóru tjaldi í dalnum sjálfum. Veitingasala verður á tónleikasvæðinu þar sem fjölbreytt úrval af mat og drykk verður á boðstólum fyrir hungraða hátíðar- gesti auk þess sem veitingastaðurinn í Fjöl- skyldugarðinum verður opinn fram eftir bæði kvöldin. Léttvínssala verður svo í fé- •agsheimili Þróttar og í tjaldi milli Laugar- dalshailar og skautahallar. Til hliðar við skautahöllina mun fara fram eitt vegleg- asta hjólabrettamót sem haldið hefur verið hér á landi. Brettakappar alls staðar að mæta og sýna fjölleikalistir sínar í loftköst- um. Hátíðin hefur vakið verðskuldaða athygli um allan heim enda koma nargir af bestu og efnilegustu listamönnum samtimans fram á hátíðinni. Fulltrúar erlendra tíma- rita, fjölmiðla og útgáfufyrirtækja hafa boðað komu sína svo sem blaðamenn og ljósmyndarar Melody Maker og Dazed & Confused og útgáfurisarnir EMI og Virgin. Að sögn tónleikahaldara hefur gengið vel að selja inn á svæðið og hafa erlendir tón- listaráhugamenn sýnt mikinn áhuga og þá einna helst Bretar. Búist er við að nokkur þúsund manns komi saman í dalnum um helgina og njóti þess besta og ferskasta sem tónlistarheimurinn hefur upp á að bjóða. v/ww.lapgarassbio.ls Sextíu ára út- skriftarafmæli ÞAÐ er alltaf skemmtilegt þegar gamlir sam- nemendur halda hópinn, hittast og minnast skóladaganna. Þetta hafa þau Erla Guðrún Is- leifsdóttir, Anna Friðbjarnardóttir, Selma Kristiansen, Stefán Þorleifsson, Jón Þórisson og Þorbjörg Þórhallsdóttir gert allt frá því þau útskrifuðust frá íþróttakennaraskóla Björns Jakobssonar á Laugarvatni í júní 1940. Skóla- systkinin hafa haldið þeim góða sið í þessi sex- tíu ár að hittast á tíu ára fresti, gleðjast saman og rifja upp skólavistina á Laugarvatni. Þor- björg er látin. Útskriftarhópurinn vorið 1940. Aftast standa prófdömarar, f.v. Jón Þórisson og Stefán Þorleifsson. Fremst sitja f.v. Erla ís- leifsdóttir, Anna Friðbjamardóttir, Þor- björg Þórhallsdóttir og Selma Kristiansen. Sýnd 5.40 og 10.50. B.i. 16, [][];ooIby k-k-k-, Tvíhofðí 'ú ★★1/2 ÓFB Hausverk.is mfNGflGEMEMT Tommy Lee Jones og Samuel L. Jackson í topp formi í frábærri spennu- mynd sem fór beint á toppinn í Ðandaríkjunum. ANY GIVEN ÍSUNDAY 101Reykjavík Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. POWER-sýning kl. 12 á miðnætti. Vit nr. 81 Sýnd kl. 6, 8 og 10. 3 aífetia aMBaJRn N¥Y/%lS Keflavik - sinii 421 1170 - samfilm.is 101 Reykjavík sýnd kl. 8. Vitnr. 89 Sýnd kl. 10. Vit nr. 77 m x ixroiiTYrjíixo: 11 u.i i innrnim iflumn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.