Morgunblaðið - 14.12.2000, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 14.12.2000, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Flugvöllur - hér eða þar EITT þeirra mála sem hafa vakið um- talsverða umræðu undanfarna mánuði er framtíð Reykjavíkur- flugvallar en völlurinn er nú tæplega sextíu ára gamall. Oft áður hafa verið skiptar skoðanir um framtíð vallarins og hafa þær raddir skiljanlega orð- ið háværari með hækkandi lóðaverði og samgöngukostnaði. Margir fróðir menn hafa komið að þessu máli, bæði innlendir og erlendir. Á árunum 1965-67 starfaði m.a. nefnd sem þá- verandi samgönguráðheiTa skipaði og átti hún að gera „tillögur um Flugvallarmál Framtíðarflugvöllur, á eða í tengslum við höf- uðborgarsvæðið, segír Gestur Ólafsson, skiptir alla Islendinga miklu. framtíðarskipan flugvallarmála Reykjavíkur." þessi nefnd varð m.a. sammála um eftirfarandi: „Nauðsynlegt er að taka frá land á höfuðborgarsvæðinu eða alveg við það, þar sem gera má flugvöll er fullnægi a.m.k. þörfum innanlands- flugs.“ Taldi nefndin helst jtoma til álita að gera flugvöll á Álftanesi (svokallaðar L og X hugmyndir), en einnig í Kapelluhrauni, sunnan Hafnarfjarðar. Nefndin varð hins vegar ekki sammála um framtíð- arhlutverk Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkuflugvallar. Athyglisvert er einnig að í áliti minni hluta nefndarinnar segir: „Allir þeir að- ilar, sem falið hefir verið að rann- saka og gera tilllögur um framtíð- arskipan flugvallar fyrir Reykjavíkursvæðið, eru sammála um það, að núverandi flugvöllur sé ekki til frambúðar og að hentugasti staður fyrir flugvallarsvæði sé Álftanes.“ Ekki varð þó af flugvallargerð á Álfta- nesi og nú, röskum 30 árum eftir að þessi nefnd skilaði af sér 250 síðna áliti, er þetta mál enn á dgskrá. Nú er það hald þeirra sem hér ráða ferð að vænleg- ast til góðrar ákvörð- unar sé að efna til kosninga um málið enda sé það skref í átt til meira lýðræðis í skipulagsmálum. Ekki vil ég van- meta góða viðleitni til að auka lýð- ræði og þátttöku almennings í skipulagsmálum enda erum við þar umtalsverðir eftirbátar flestra að- liggjandi þjóða en þó skiptir miklu hvernig með er farið. Síðastliðin 30 ár hafa skipulagsfræðingar þróað aðferðafræði um hvernig æskilegt sé að undirbúa mál til ákvarðan- töku og virkrar þátttöku almenn- ings. Ekki þarf t.d. að leita lengi á Netinu (public participation in planning) til þess að finna helstu atriði þessa máls en einnig eru til margar ágætar handbækur sem fjalla um þessi fræði. í grófum dráttum hefur hér átt sér stað þró- un frá einföldum kostnaðar-/ávinn- ingssamanburði í heildrænan sam- anburð á mismunandi kostum og áhrifa hvers kosts á viðkomandi samfélag (community impact). Hér er þó í grundvallaratriðum ekki um annað að ræða en framfar- ir í viðkomandi ákvarðanatökuferli til þess að reyna að tryggja betri ákvarðanir en ella. Hliðstæðar framfarir áttu sér stað víða um heim í kjölfar löggjafar sem Bandaríkjamenn settu árið 1970 um mat á umhverfisáhrifum og einnig er víða farið að nota skyldar aðferðir við mat á afleiðingum hugsanlegrar stefnumörkunar op- inberra aðila og fyrirtækja áður en hún kemur til framkvæmda. Framtíðarflugvöllur, á eða í Gestur Ólafsson tengslum við höfuðborgarsvæðið, skiptir alla íslendinga miklu og því verðum við að hafa í höndunum fullnægjandi mat og samanburð á þeim kostum sem koma til greina ef hægt á að vera að taka forsvar- andi, vitlega ákvörðun um málið. þetta ætti að liggja í augum uppi. Annars eru litlar líkur á að kosning verði mikið meira en vinsælda- kapphlaup eða fegurðarsamkeppni þar sem almenningur hefur enga möguleika á að setja sig inn í grundvallaratriði málsins. Þetta mál er líka miklu flóknara en svo að það snúist bara um flugvöllinn, flugtæknileg atriði eða þrönga skammtímahagsmuni. Framtíð Reykjavíkurflugvallar er eitt af grundvallaratriðum í samgöngu- stefnu íslands og framtíðarskipu- lagi Reykjavíkur og byggðar á suð- vesturhorninu. Þetta er því ekki mál sem forsvaranlegt er að biðja fólk að taka afstöðu til án þess að sýna áður á skiljanlegan hátt helstu afleiðingar af þeim kostum sem hér koma til greina og vænt- anleg áhrif þeirra á viðkomandi sveitarfélög - bæði góð og slæm. Það er því tvímælalaust hlutverk þeirra manna sem hafa tekið að sér að leiða þetta mál til úrskurðar al- mennings - og þá sérstaklega þeirra háskólamanna sem hér eiga hlut að máli - að tryggja að und- irbúningsvinnan og samanburður á mismunandi kostum séu faglega unnin og sett fram á einfaldan, skiljanlegan hátt, áður en til kosn- inga kemur. Höfundur er formaður Skipulagsfræðingafélags lslands. r ■ *■ Undirföt silkináttföt tólkikjólar feHflkiólar f Ul £ Vj lUP [ undirfataverslun Kringlunm, sími 553 7355. MUNIÐ GJAFAKORTIN VIN air isolate max, st. 36-42 verð 10.490 ÚTILÍF air tuned idea, st. 36,5-41 verð 13.590 Sirri 54513» • wwaaíffiis air winter waffle, st. 42-46, verð 10.490 air double face, st. 42,5-48,5 verð 8.950 air dri goat st. 38-40,5 verö 12.490 gore-tex x-up, st. 32-38,5 verð 4.750 air double face bg, st. 35-38,5 verö 6.290 x-up velcro, st. 28-35 verð 4.750 air gleam mid, st. 36-42 verð 7.990 air amenity, st. 41-49,5 verð 7.250 Vantar þig vinnu? www.radning.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.