Skírnir - 01.01.1877, Síða 44
44
AUSTRÆNA MÁLIÐ.
Frá Vín fór lávarðurinn suönr á Ítalíu og fjekk þar áþekk svör
af Melegari, ráSherra utanrikismálanna í stjórn Viktors konungs.
þa8 mun óhætt a& fullyröa, aS Englendingum og erindrekum
þeirra mundi hafa líkaS þaS bezt, ef svörin hefSu hljóSaS svo á
öllum stöSum. Til Pjetursborgar fór lávarSurinn ekki, en sendi-
hoSi Breta, Loftus lávarSur, hafSi haft tal af Alexander keisara
(á Krímey) og hermt nákvæmlega öll hans ummæli til stjórnar-
innar á Englandi. Keisarinn hafSi lagt þar viS Bdýran“ dreng-
skap sinn og heiSur, aS sjer kæmi ekki til hugar aS vinna lönd
undir sig eSa auka Rússaveldi, og kæmi svo, aS hann yrSi aS
senda her inn á Bolgaraland, þá skyldi þaS hertak ekki standa
lengur, enn nauSsyn bæri til og allt væri þar komiS í rjetta og
skapiega skipan. MiklagarSi kæmi sjer sízt til hugar aS ná á
sitt vald. Sú eign yrSi Rússlandi til ógæfu einnar, og eð sama
væri um útfærslu landamerkja þess í Evrópu aS segja. ASalmark
sitt væri aS gera enda á hörmungum kristinna manna í löndum
Tyrkja, og hjer væri vegur, sæmd og hagsmunir Rússlands svo í
veSi, aS hann mætti engi undanbrögS þola af Tyrkja hálfu. Hann
vildi af heilum huga hafa fylgi og aSstoS stórveldanna og allrar
Evrópu, en færi svo, aS öSrum yrSi einurSarskortur í málunum,
þá yrSi hann aS freista, hvaS sjer einum yrSi ávinnt. Hvab
stjórn Breta hefir líkaS eSa mislíkaS í orSum Rússakeisara, þarf
ekki getuin um aS leiSa, en hitt hlaut aS vera henni eigi óskap-
felt, er keisarinn skýrskotaSi til þeirra atriSa, sem Englendingar
höfSu áSur stungiS upp á. og ljet sjer mundi falla vel í geS, ef
þeim yrSi fram haldiS á fundinum. Erindrekarnir komu til Mikla-
garSs i öndverSum desember, en áSur undirbúningsfundum þeirra
var lokiS, urSu hjer þau umskipti, aS stórvezírinn — Mehemed
Ruschdi paska — gaf upp sæti sitt fyrir þá sök, aS hann þóttist
ekki geta fallizt á þær breytingar í stjórn og rjettarfari, sem
sessunautur hans Midhat paska vildi svo fastlega fram fylgja.
Midhat settist þá í hans staS í stórvezírs-sessinn. Hann er, sem
fyr er sagt, af „Ung-Tyrkja“ flokki, en þeir vilja taka upp sitt hvaS
af stjórnarháttum EvrópuþjóSa og siðum. Menn grunaSi rá8 hans.
sem þa8 kom fram, og skömmu sfóar enn erindrekarnir voru farnir
a8 bera sig saman um málin, sendi Safvet paska, ráSherra utan-