Skírnir - 01.01.1877, Síða 116
116
Þýzkaland.
garali lypti drottni himnanna á hástig, Þegar ^ann lítur til hans
upp, sem leiStoga prússneskra og þýzkra herfylkinga.
Skírnir hefir opt minnzt á, a8 kenningar jafnaöarmanna
hafa á Þýzkalandi fengiÖ, ef til vill, sína heztu forvígismenn (t.
d. Lasalle, Karl Marx, Jacohy o. fl.) og komiö verkmönnum
saman í fastari flokka enn í nokkru ööru landi. Aö minnsta
kosti má fullyröa, aö rit þjóÖverja um þau mál — hvort heldur
þau eru meÖ eÖa á móti jafnaÖarmönnum — fara aö svo komnu
fram yfir rit annara þjóöa. þetta kemur sumpart af því, aö
engir rannsaka glöggvar allar liugmyndir og frumhugsanir enn
þjóöverjar, og engir vinna aÖ því meÖ meira kappi enn þeir, aö
búa til úr hvorumtveggju heil kerfi mynda og hugsana, og síöan
reglur hæfar fyrir iífið og mannfjelagið. Sumpart hefir orsökin
til útbreizlu jafnaðarkenninganna verið sú, aö það hefir svo
kreppt aÖ verknaðarstjettinni á seinustu árunum og atvinnuleysið
orðið meira enn nokkurn tíma áður. þetta stendur aptur í
sambandi við fleiri atvik, t. d. gullstrauminn frá Frakklandi,
gróðabrögð og ávinningsfyrirtæki þeirra, sem guilinu náðu,
einkarlega í böfuðborginni. Hjer var tekið til margra stórstarfa
eptir stríðiö, og að því skapi dróst fólk hingað til atvinnu og
aptur að sama hófi varð húsunum að fjölga ‘. En þegar pening-
ana þrýtur, og nýsmíðið eða nývirkin kasta engu af sjer eða
minna enn svaraði til útgjaldanna, þá verður og starfinn að
hætta og atvinnunni er lokið. í öðru lagi hefir það gert hagi
þess fólks, sem hefir atvinnu af járnsmíðum, mjög bágborna, að
tollur á þeim varningi var af numinn fyrir nokkrum (2?) árum.
Að þessu hefir komið í enum vestri löndum Prússaveldis, þar
sem járnsmíðar og járnsteypuverknaður eru helztu iðnir til atvinnu.
Frá Berlín bárust í vetur miklar kveinsögur, og að jafnaði voru
þar 25 þúsundir verkmanna atvinnulausir. það er því hægt að
skilja, að verkmannafólkið leiti allra úrræöa, en á hinn bóginn
verður ekki annað sagt, enn að jafnaðarmenn á þýzkalandi,
sem annarstaðar, hafi heldur að svo stöddu aukið vanhagina, enn
’) íbúar Berlínar eru nú 1 millión að tölu, og hafa síðan um 1871
aukizt um hjerumbil 250,000.