Skírnir - 01.01.1877, Page 123
AUSTURRÍKI OG UNGVERJALAND.
123
Ungverjar balda fram í stóru og smáu, sem varSar belmingarflelag
þeirra viB Austurríki.
Mannalát. 26. maí 1876 d<5 í Prag hinn nafnfrægi
þjóÖskörungur Czeoha, Frants Palacky, f. 14 júni 1798. Hann
var ágætur rithöfundur og hinn helzti söguritari þjóBar sinnar.
Fyrirtaksrit hans er saga Böhmens í sex bindum, en nær ekki
lengra enn til 1526. t>ar a8 auki liggja eptir hann margskonar
rit önnur, me8al þeirra „Hi8 czeohveska skjalasafn" (í 5 bindum,
brjef og annálar 1840—66). Hann varb frá 1848 binn helzti
forvígismabur fyrir rjettindum þjóbar sinnar og barbist svo
lengi sem unnt var fyrir þvi, a8 bæbi Norbur- og Suburslafar
væru gerbir jafnir aS rjetti viS hina þjóbflokkana í Austurríki
Meban hann átti sæti í herradeild Vinarþingsins, bar hann upp
frumvarp til alríkisskipunar, en þar var þjóbflokkunum í öllu
rikinn skipt á 8 land-heildir eba rikisparta, og skyldi, hver
þeirra hafa þing sjer (í einum Böhmen, Mæhren og Silesia), en
allir airíkisþing í Vínarborg. Hinar langvinnu tilraunir ab koma
Austurríki í fasta skipun fengu abrar lyktir, en fæstum þykir
þab líklegt, ab skipulagiS verbi statt og stöbugt fyr enn Slafar
hafa fengib þann rjett, sem þeir eiga þjóblega og löglega heimt-
ing á. — 12. septbr. andabist í Gratz Anton Auersberg, greifi,
(bróbir stjórnarforsetans, f, i Laibach 11. apríl 1806). Hann er
einn af enum orblagbari skáldum þjóbverja, og eptir hann eru
bæbi ljóbasöfn og skáldsögur, sem fyrir snilld og fegurb munu
lengi halda uppi skáldfrægb hans. Höfundarnafni kallabi hann
sig Anastasius Griin. Hann var frjálslyndur mabur og var ávallt
í frelsismanna flokki á þingum, en mjög vib ríkismál og lagasetn-
ingar ribinn, þó hann aldri vildi taka á móti sæti í rábaneyti
Austurrikiskeisara. Hann var einn af helztu forustumönnum þjób-
verja á Vínarþinginu (í herradeildinni) og átti mikinn þátt í
sarakomulaginu viS Ungverja, en stób harblega á móti jafnrjettis-
kvöbum Slafa. þegar kirkjulögin voru rædd og Austurríki sleit
af sjer páfafjöturinn var hann fremstur í flokki, og beitti mælsku
sinni sem einarblegast á móti ánaubarríki kaþólsku kirkjunnar.
Hann varb allri alþýbu manna mjög harmdaubi, bæbi í Austur-
ríki og á öllu þýzkalandi.