Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1977, Blaðsíða 13
mannamyndir sigurðar málara
19
tekiS íróöleiksatriði aö hann hefur komiö að Saurbæ og hitt sr. Einar:
»S. Einar í Saurbæ sagði mér ár 1856.“x) Sterkar líkur benda því til
að frummyndin, sem áðurnefndar ljósmyndir eru af, sé eftir Sigurð
nráiara. Þrátt fyrir nokkra eftirgrennslan meðal afkomenda sr. Einars
hefur ekki komið fram nein vitneskja um frummyndina, hvort sem
hún er eftir Sigurð eða ekki.
J) Sbr. einnig' Árbók liins íslenzka fornleifafélags 197A (Rv. 1975), bls. 113.
14 Elín Thorarensen, f. Havsteen (1800—1873) húsfreyja, Enni.
Blýantsteikning, 19.8 X 16.7 cm. Áritun í vinstra horni að neðan, lítið
eitt á ská: Sigurör Gaðmundsson 1856. Allstór
hvítur rakablettur ofan til á myndinni og óljós-
ari flekkir hér og hvar. Annars vel varðveitt. Nú
í nýlegum, gylltum 4 cm br. ramma undir gleri.
Myndin er eins og áritun bendir til gerð í ferð
Sigurðar um Norðurland sumarið 1856. Þau
Lárus, maður Elínar, bjuggu þá í Enni á Höfða-
strönd.
Myndin er eign Byggðasafns Skagfirðinga í
Glaumbæ, skráð nr. 644. 1 skrá þess segir um
niyndina af Elínu og manni hennar (sjá Lárus
Thorarensen, nr. 61 í þessari skrá) að þær séu „gefnar safninu af
erfingjum Jóhannesar Jóhannessonar bæjarfógeta ... en Jóhannes
var dóttursonur þeirra hjóna. Þær voru geymdar á Reynistað og komu
ekki í safnið fyrr en vorið 1962.“ *) Maren, dóttir Elínar og Lárusar,
var kona Jóhannesar Guðmundssonar sýslumanns í Hjarðarholti og
móðir Jóhannesar bæjarfógeta.
J) Óprentuð skrá Þórs Magnússonar um Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ
(eintak Þjóðminjasafns).
15 Elín Thorstensen, f. Stephensen (1800—1887) húsfreyja, Reykja-
vík. Blýantsteikning, 29.8 X 22.4 cm. Árituð í vinstra horni að neðan,
Rokkuð á ská: Sigurðr Giíöm: 1859. Myndblaðið hefur rifnað hægra
megin að ofan áður en það var límt á spjald. Samkvæmt áritun er
niyndin gerð í Reykjavík árið eftir heimkomu Sigurðar.
Eign Þjóðminjasafns, skráð Mms. 7933. Kom til safnsins 13.2.
1940, gjöf frá Margrétu Björnson, konu Guðmundar landlæknis