Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1977, Blaðsíða 41
mannamyndir sigurðar málara
47
68 Marie N. Finsen, f. Möller (1803-—1886) húsfreyja, Reykjavík.
Blýantsteikning, 28.7 X 21.1 cm. Áritun í vinstra horni að neðan,
nokkuð á ská: SigurSr Guðmundsson 1859.
Myndblaðið hefur einhvern tíma rifnað og verið
h'mt á pappaspjald. Ártalið sýnir að myndin
er gerð í Reykjavík árið eftir heimkomu Sigurð-
ar frá námi.
Teikningin er eign Þjóðminjasafns, skráð
Mms. 8942, og barst safninu 19.6. 1940 að gjöf
frá Svavari Hjaltested, Reykjavík. Marie N.
Finsen var langamma gefandans. Sonur Marie,
Ole P. Finsen póstmeistari, hefur líklega eignast
myndina eftir móður sína, og síðan Sofía Hjalte-
sted, móðir gefandans.
69 Níels Jónsson (1782—1857) „skáldi“. Blýantsteikning, 17.7 X
18.5 cm. Áritun í vinstra horni að neðan: 184-9 í Ágúst. Samkvæmt
því gerð heima í Skagafirði rétt áður en Sigurð-
ur fór utan til náms. Myndin er vel varðveitt.
Orð Péturs bróður hans í bréfi, dags. á Jóns-
messu 1861,] ) má ef til vill skilja þannig að Sig-
urður hafi gert þessa mynd eftir minni.
Eign Þjóðminjasafns, barst því að gjöf 30.9.
1926 frá Daníel Daníelssyni dyraverði, en að
framan (sjá nr. 11, Daði Níelsson) er getum
leitt að því hvernig myndir eftir Sigurð kom-
ust í hans eigu.
1 bréfasyrpu Sigurðar í Þjóðminjasafni.
70 Níels Jónsson „skáldi“. Sigurður svarf í blágrýti sams konar
uiynd af Níelsi og til er af Gísla Konráðssyni1) (sjá nr. 19). Ekki fara
sögur af því hvað um hana hefur orðið.
D Helgi E. Helgesen, op. cit., bls. 3; Páll Briem, op. cit., bls. 4.
71 Ólafur Sívertsen (1790—1860) prestur, Flatey. Blýantsteikn-
ing, spjaldstærð 29 X 22.5.x) Áritun til vinstri að neðan, nokkuð á
ská: Sigurðr Guömundsson 1858. Eftir þessu gerð í Breiðafjarðar-
ferðinni, en sr. Ólafur var þá prestur í Flatey. Myndin er prýðilega
varðveitt.