Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Qupperneq 46
50
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
mælum var bænhús á Kaðalstöðum í sömu sveit og vitað er um kirkjur eða
bænhús í Arnarholti, Stórugröf og Grísatungu auk kirkjunnar í Stafholti.5
Ekki er í dag gott að sjá, hvar bænhús í Neðranesi gæti hafa staðið, en líkur
benda til, að það hafi verið á því hæðardragi þar sem gamla íbúðarhúsið
stendur nú. Ekki er ósennilegt, að leifar þess hafi spillst þegar húsið var byggt
i byrjun þessarar aldar, en það þarf þó ekki að vera. Önnur bæjarhús
hafa að líkindum staðið norðan við hugsanlegan stað bænhúss. Það er því
mögulegt, að gamla bæjarstæðið í Neðranesi gæti orðið rannsóknarefni fyrir
fornleifafræðinga þar sem fyrirsjáanlegt er, að það gæti orðið autt einhvern-
tíma, þar eð bæjarhúsin hafa með timanum færst í austur og suðaustur.
Það sem hér hefur verið sagt gæti rennt stoðum undir þann grun margra, að
bænhús hafi verið víðar en getið er um í rituðum heimildum. Auk þess minnir
það okkur á hversu brýnt það er að vera vel á verði, ef hróflað er t.d. við
gömlum bæjarstæðum, því að þá kunna að koma upp heimildir, sem ekki
verður gengið að og flett upp í að nýju.
TILVITNANIR
1 Diplomatarium Islandicum, Khöfn og Rvk 1857-1972, I, bls. 179-180.
2 D.I. XV, bls. 621. í registri XV. bindis stendur Nes(nedra).
3 Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Khöfn 1927. IV, bls. 321.
4 Magnús Már Lárusson: „Privatkirke", kulturhistorisk Leksikon XIII, Rvk 1968.
5 Sveinn Níelsson, Hannes Þorsteinsson og Björn Magnússon: Prestatal og prófasta á íslandi.
Rvk. 1950.
SUMMARY
During the summer 1980 considerable remains of human bones came to light on the farm
Neðranes, Mýrasýsla, southwest lceland. Apparently they had been in a hole east of the farm
house, some 70 cm below the surface. The bones were taken care of by the National Museum of
Iceland and proved to be parts of skeletons of at least ten individuals, children and adults.
According to the farm people at Neðranes human bones have turned up there twice in this cent-
ury. The irregular heap of bones found this time can be explained as the first find reburied in the
hole.
These bones from Neðranes are certainly from Catholic times. i.a. from before about 1550,
most likely considerably older. Quite obviously there must have been a chapel and a grave yard on
the farm, although it is not mentioned anywhere in written sources. The importance of the find,
therefore, is that it confirms what was more or less known already, how very numerous small pri-
vate farm-chapels were in the Middle Ages.