Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Side 113
MYNDIN AF STEINI BISKUPI JÓNSSYNI
117
hefur haft vitneskju um, að málverk af Steini biskupi hafi verið í Kaupmanna-
höfn og telur það því gert þar, en áttar sig ekki á, að allt er þetta eitt og sama
málverkið. Einkennilegt er, að Þorvaldur hefur ekki séð hið rétta i þessu máli,
því að í Landfræðissögu sinni vitnar hann einmitt í nefnt bréfasafn, AM 410
fol, en greinilega hefur hann ekki kannað það nákvæmlega. Sennilega hafa
eftirfarandi orð biskups villt um fyrir honum: ,,og var ekki von til að þér
kæmist nær minni mynd en þér gjörðuð.“ En þarna merkir mynd ekki mynd í
algengasta nútíma skilningi, heldur eins og í biblíunni, þar sem segir að guð
skapaði manninn ,,eftir sinni mynd.“
í fljótu bragði kann að virðast ótrúlegt að séra Hjalti hafi getað gert þolan-
lega góða mynd af Steini biskupi eftir minni. Hafa ber þó í huga, að fyrr á tíð
voru allt aðrar og minni kröfur gerðar um líkindi manns og myndar en nú er
farið að gera eftir að menn hafa vanist ljósmyndum í meira en heila öld. í
öðru lagi er vert að minnast þess að séra Hjalti og Steinn biskup voru ná-
kunnugir á æskuárum. Þeir voru saman í Hólaskóla í þrjá vetur á árunum
1680 - 1683. Árið 1692 tók Steinn við dómkirkjuprestsembættinu í Skálholti
af Hjalta og sennilegt að þeir hafi þá sést, svo og að þeir muni hafa sést stöku
sinnum síðar á ævinni, þótt ekki hafi það verið oft. í þriðja lagi er svo til ágæt
heimild fyrir því að séra Hjalti gerði hvað eftir annað mannamyndir eftir
minni og það eftir að hann var orðinn háaldraður. Þannig gerði hann að til-
mælum Jóns Þorkelssonar skólameistara myndir eftir minni af Árna Magnús-
syni, séra Páli í Selárdal og líklega Jóni biskupi Vídalín (sjá ævisögu Jóns
Þorkelssonar skólameistara í Skálholti, II, Rvk. 1910, bls. 137-139, sbr.
einnig Árbók fornleifafél. 1968, bls. 86-88).
Málverkið var orðið mjög skemmt þegar Sigurður Vigfússon sá það í Hóla-
dómkirkju árið 1886, sbr. Árbók fornleifafél. 1888-92, bls. 101-102. Segir
Matthias Þórðarson í skrifaðri athugasemd í eintaki safnsins af Árbók, að
Pálmi Pálsson hafi látið gera við myndina í Kaupmannahöfn eftir að hún kom
til safnsins (1888), og þá hefur verið skipt um ramma á henni. Er hún nú í
dökkum ramma með gylltri rönd. Málverkið sjálft þarf nú að komast í hendur
fagmanns til frekari meðferðar og mun það verða gert eins fljótt og unnt er.