Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Síða 132
136
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
fjörður inn úr Skerjafirði og gætir þar mjög flóðs og fjöru, en að norðan af
Bessastaðatjörn (10), sem einnig var eins konar fjörður eða vík þangað til
1953 að gerður var stíflugarður mikill fyrir framan hana, svo að nú er þar
ferskt vatn og gætir ekki flóðs og fjöru. Að austan er svo Skerjafjörður (11).
Einu nafni er allt þetta land kallað Bessastaðanes (\2), en oft er það nafn helst
haft um landið innan við staðinn, í daglegu tali ,,Nesið“, ,,inni í Nesi“.
Heima við bæjarhúsin, norður af flötinni milli húss og kirkju, þar sem
fánastöng stendur nú, er hóll með snarbrattri brekku norður af, og segir
Benedikt Gröndal (og Björn Erlendsson) að þetta heiti Bessastaðahóll (13), og
voru nýsveinar látnir velta þar niður heldur ómjúklega á dögum skólans. Á
jökulruðningnum sem áður var nefndur er þetta greinilegasta hólmyndunin,
og mundi það ef til vill segja sína sögu um nafn bæjarins. Frá kirkju og vestur
að Lambhúsum var nefndur Langivöllur (14), og var það þó einkum
sunnanmegin (Lambhúsatjarnarmegin), sunnan heimreiðar en nú er þetta
nafn haft um allt vesturtúnið.
í norður og norðaustur af Bessastaðahól, niðri við tjörnina, voru áður fyrri
allmikil ummerki eftir ýmiss konar búsumstang, og lýsir Benedikt Gröndal því
nokkuð, en ummerki þessi eru nú að mestu horfin, meðal annars af því að sjór
hefur brotið þarna mikið land, og er því erfitt að marka nákvæmlega fyrir
hvar hvað eina var. Traðir lágu ofan að smiðju og þar var Sjóbúðarflöt (15),
og þar var Skevingstún (16), kennt við Hallgrim Scheving kennara á
Bessastöðum. Hjá Sjóbúðarflöt var tóft sem víst var kölluð Sjóbúð (17), og
enn fremur mun þarna hafa verið uppsátur, Bessastaðavör (18). Af öllu þessu
sést aðeins votta fyrir leifum af gömlum garði sem sjór hefur brotið af meðan
enn flæddi inn i tjörnina. Þessi nöfn mega nú heita óþekkt. Norður frá bíl-
stjórahúsi (sem nú er) var hólmynd i túninu og nefndist Smiðjuhóll (19) og
minnir á smiðjuna, en sést ekki lengur. Þarna norður frá bústjórahúsi og bíl-
stjórahúsi nær sjó heitir nú Prentsmiðjuflöt (20), sem er nafn frá dögum
Skúla Thoroddsen, enda sér þar enn steyptan grunn undan prentsmiðjuhúsi
hans.
í Bessastaðatjörn er áðurnefndur hólmi þar sem æður verpur og nefnist
hann Bessahólmi (21) i landamerkjaskránni og það nafn nota bæði Benedikt
Gröndal og Björn Gunnlaugsson. Það á því mikinn rétt á sér, en nú er hólm-
inn stundum kallaður Bessi (22) í daglegu tali og einnig heyrist nafnið Bessa-
staðahólmi (23), sem kynni að vera það upprunalegasta. Björn Erlendsson
telur að Bessastaðahólmi sé algengast og hermir þau munnmæli, að Bessi
bóndi á Bessastöðum sé heygður þar. í tíð Ásgeirs Ásgeirssonar forseta var
hólminn mikið stækkaður til suðurs með því að aka að honum grjóti og
hnausum á ís. Lítill hólmi er nær Eyvindarstöðum og var hann einnig gerður
að undirlagi Ásgeirs Ásgeirssonar, sem kallaði hann Kóra (24) eftir fæðingar-