Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Page 135
ÖRNEFNI OG MINJAR í LANDI BESSASTAÐA
139
Skansinn (44) eða Bessastaðaskans (45), og sér þar einnig leifar af rústum
smábýlisins Skans (46) með túngarði. Suður -af Skansinum er víðáttumikil
mýri sem Björn Erlendsson rámaði í að héti Skansmýri(41), enda staðfestist
það af uppdrætti Björns Gunnlaugssonar.
Árið 1901 keypti Tryggvi Gunnarsson Skansinn og girti þvert yfir í beina
linu frá Bessastaðatjörn og í Skerjafjörð. í yfirlýsingu um þetta 5. mars 1928
segir Theodóra Thoroddsen að þessi girðing hafi legið „eftir því sem ég man
best, úr Bessastaðatjörn fyrir innan Skansinn þvert yfir nesið í svokallaða (sic)
Skólanaust“. Örnefnið Skólanaust (48) er nú óþekkt, en einmitt þar sem þessi
girðing hefur endað eru sýnilegir um 1 m langir endar af tveimur veggjum
samhliða, sem sjór hefur að mestu brotið. Gætu þetta vel verið leifar af
nausti, enda hefur Björn Erlendsson eftir Jakob bróður sínum að kallað hafi
verið Bátanaust (49) rétt hjá Skansinum. Sjá þó það segir um þetta í minja-
skrá. (Ath.: B.E. hefur naust í kvk. eins og Theodóra).
Hið gamla skipalægi Seilan (49) er fram af Skansinum og Dugguósi. Bene-
dikt Gröndal segist ekki þekkja nafnið Seila nema af bókum (Dægradvöl útg.
1965, bls. 4), en nú þekkja það margir og nota nokkuð.
Við skipti milli Bessastaða og Breiðabólstaða fyrir allfáum árum féll dálítill
hluti Breiðabólstaðaeyrar, næst Dugguósi, í hlut Bessastaða. Heitir það
Eyraroddi( 50).
Öll helstu örnefni þessarar lýsingar sem nú er hægt að staðsetja, hafa verið
færð inn á uppdrátt, sem fylgja á lýsingunni.
Ath.: Ekki er nú vitað hvar Grímur Thomsen lét heygja hest sinn Sóta,
framar en segir í Sjósókn, bls. 46, ,,í túninu fyrir norðaústan staðinn“. í um-
tali er þetta stundum kallað Sótaleiði (47), sem virðist mega telja með ör-
nefnum. Ókunnugt er mér, hvar Fálkahúsið stóð, eins og svo margt í fyrri
tíðar húsaskipan á Bessastöðum.
ÖRNEFNI í STAFRÓFSRÖÐ:
Akrarnir 28 Eyraroddi 50 Litlamýri 42 Skans (býlið) 46
Bátanaust 49 Eystritangi 33 Miðmýri 34 Skansinn 44
Bessahólmi 21 Eyvindarstaðamýri 5 Mómýrarháls 40 Skansmýri 47
Bessastaðagrandi 2 Grandinn 3 Mómýri 41 Skerjafjörður 11
Bessastaðahóll 13 Grásteinn 4 Músa(r)vík 35 Skevingstún 16
Bessastaðahólmi 23 Heimamýri 30 Prentsmiðjuflöt 20 Skólanaust 48
Bessastaðanes 12 Kóri 24 Ranatá 37 Skothús 38
Bessastaðaskans 45 Kringlumýri 29 Rani 36 Smiðjuhóll 19
Bessastaðatjörn 10 Lambhús 7 Sandey 25 Sótaleiði 51
Bessastaðavör 18 Lambhúsaá 6 Sauðatangi 43 Steinboginn 27
Bessi 22 Lambhúsatjörn 9 Seilan 49 Svartibakki 39
Brekkugrandi 1 Lambhúsaveita 8 Sjóbúð 17 Tangarnir 31
Dugguós 26 Langivöllur 14 Sjóbúðarflöt 15 Vestaritangi 32