Óðinn - 01.01.1929, Síða 59
ÓÐINN
59
Kirkjuvígsla og biskupsvígsla í Landakoti.
Kardínáli van Rossum.
21. júlí kom hingað frá Róma-
borg Vilhjálmur kardínáli van
Rossum, sem áður var hjer sum-
arið 1923 og vígði þá Johann Mar-
tin Meulenberg prest i Landakoti
postullegan prefect á íslandi. Var
kardínálinn þá á ferð um öll
Norðurlönd. Síðan hefur Meulen-
berg prefect reist hina fögru og
vönduðu steinkirkju í Landakoti,
og nú var það erindi kardínálans,
að vígja kirkjuna, og jafnframt að
vígja Meulenberg prefect til bisk-
ups. í för með kardínála voru
ýmsir virðingamenn kaþólskir,
tveir biskupar, Jósef Rrems Hró-
arskeldubiskup og dr. Miiller
Lóreabiskup, frá Svíþjóð, umboðs-
maður norsku kaþólsku kirkjunn-
ar, dr. Kjelstrup, Richard kórs-
bróðir frá París, yfirmaður Maríu-
reglunnar, sem hjer starfar, og dr.
Htipperts, tilsjónarmaður þess um-
dæmis hennar, sem ísland telst til.
Auk þeirra voru með kardínála
frá Rómaborg skrifari hans, dr.
Drihmann, o. fl. Er það ekki
venja, að kardínálarnir takist á
hendur langar ferðir til þess að
vígja kirkjur eða biskupa, og má
lita á það sem sjerstakan vott um
velvilja frá hálfu páfans bæði til
Marteins biskups og íslensku þjóð-
arinnar, að vígslurnar voru gerðar
svo viðhafnarmiklar.
Kirkjuvígslan fór fram 23. júlí
og biskupsvígslan tveimur dögum
síðar. Hafði Marteinn biskupsefni
boðið mörgum utan safnaðar sins að vera við
vígslurnar og mættu þar ráðherrarnir allir og
flestir embættismenn bæjarins, fulltrúar erlendra
ríkja, alþingismenn, blaðamenn o. s. frv. Var
kirkjan fullskipuð í bæði skiftin. En vígsluat-
hafnir kaþólsku kirkjunnar eru mjög hátíðlegar.
Hefur þeim verið lýst hjer allítarlega í ýmsum
frjettablöðunum og eins viðhorfi kaþólsku kirkj-
unnar meðal þjóðanna nú á tímum, m. a. í
Lögrjettu. Hinn nýi biskup í Landakoti nefnir
sig Martein biskup og er hann vigður til Hóla.
1 sambandi við vígsluna fjekk Marteinn biskup
veglegar gjafir: frá páfanum kross, er kaþólskir
biskupar bera á brjósti, frá kardínálanum bisk-
upshring, og bagal, eða biskupsstaf, frá yfir-
manni Maríureglunnar. Skáldkonan Sigrid Und-