Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1884, Blaðsíða 37
37
enn móðir Ragnheiðar var Helga, dóttir Ara lögmans,
sonar Jóns biskups Arasonar. Ragnheiðr giftist fyrst
Gissuri, syni porláks Einarssonar; bjuggu þau á Núpi
í Dýrafirði 12 ár. Gissur varð fyrir snjóflóði með 2
mönnum öðrum og dó, þá er hann var á ferð frá
Rafnseyri, á þorra vetrinn 1597, og vóru synir þeirra
Jón, faðir síra Torfa í Gaulverjabœ, og Magnús. Enn
ár 1600 giftist Ragnheiðr aftr síra Sveini, og vóru synir
þeirra Gissur og Brynjúlfr; hún var kvenskörungr
mikill, vitr, örlát og djarfmælt, hver sem í hlut átti.
Á yfirreiðum sínum um Vestfirði kom Oddr biskup
Einarsson einhverju sinni að Holti, enn síra Sveinn
var riðinn heiman í kaupstað ; tók Ragnheiðr honum
og sveinum hans vel og höfðinglega; sátu þau saman
og töluðu um hitt og þetta sér til gamans, og sem
hann var orðin nokkuð ölglaðr, sagði hann, að sér
segði svo hugr um, að einhver sona síra Sveins mundi
verða biskup eftir sig i Skálholti, og bað að lofa sér
að sjá þá. Hún tók þessu óliklega, bæði vegna fjöl-
skyldu síra Sveins og fleira annars, er hún til fœrði;
var þá kallað á stjúpsonu hennar; biskup leit á þá og
blessaði þá, og er þeir vóru farnir burt, sagði hann,
að enginn þeirra mundi verða biskup; lét hún þá
koma með son sinn og síra Sveins, Gissur, sem þá var
tvævetr; biskup leit á sveininn og blessaði hann og
sagði, að eigi mundi hann heldr verða biskup. þ>á
mælti hún : „Svo er sem ég sagði, að yðr ætlar nú að
skjátlast, herra“! Hún var þá ólétt, og benti biskup á
hana og mælti: „Ekki mun mér skjátlast, því sá mun
verða biskup eftir mig, sem þú nú ber undir brjósti
þínu“x. Brynjúlfr biskup sagði sjálfr frá því síðar, að
meðan hann var í skóla, hefði Oddr biskup jafnan
verið sér góðr, og látið meíra eftir sér enn öðrum
1) Sbr. kirkjusögu Finns, 3. p. bls. 604.