Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1884, Page 62

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1884, Page 62
61 gátu vinir biskups nokkurum árum síðar áunnið það, að biskup tók Daða í sátt við sig, svo hann fékk upp- reist til prestskapar og Steinsholt i Hreppum. Halldór biskupsson var fœddr 1642 og heitinn eftir móðurföður sínum; hann var tornæmr og treg- gáfaðr, svo faðir hans lét hann hætta við skólanám og sendi hann 1662 til Englands; þar dvaldi hann í 4 ár, oftast nær í Yarmouth, og þar dó hann 1666 úr lungnavisnun, áðr enn hann komst hingað heim aftr, er hann ætlaði sér. Faðir hans lét setja þessa graf- skrift á legstein yfir leiði hans: Halldoris íslandi cineres humus anglica serva, depositumque bona quandoque redde fide. Árið eftir arfleiddi biskup f»órð, dótturson sinn, að öllum eignum sinum föstum og lausum, enn áskildi, ef þórðr léti ekki lífs erfingja eftir sig, að þær þá hyrfi aftr til nánustu ættingja þórð- ar í móðurætt, enn eigi til föðurfrænda. Sama sumar var J>órðr arfleiddr af ömmu sinni, biskupsfrú Margréti Halldórsdóttur, og vóru þessar arfleiðsluskrár staðfest- ar af konungi 1669. Biskup tók ástfóstri við dóttur- son sinn, og lét fara að kenna honum jafnskjótt og hann hafði aldr til. Ár 1670 (21. júlí) andaðist húsfrú biskups, 55 ára gömul; hún var guðhrædd, trú og trygg, og góðgerðasöm kona. J>ann sama sunnudag, sem hún var jörðuð eftir messu, hafði biskup vígt 3 presta; enn meðan á jarðarförinni stóð, féll hann nokkur- um sinnum í ómegin. Ofan á þessa harma hans bœttist sama ár galdra- mál þar heima á staðnum. Jón, yngri sonr Sigurðar lögmanns, sem þá var skólapiltr í Skálholti, bar upp á Lopt Jósepsson dómkirkjuprest, að hann fœri með galdr, og var presti á hinu almenna klerkaþingi á al- þingi samsumars boðið að hrinda þessum áburði af sér með tylftareiði; enn er hann gat það ekki, var ályktað, að bera málið undir náðir og úrskurð kon-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.