Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1884, Síða 95
95
byggingunni; en fyrir nokkrum árum fannst það, að
kletturinn, sem vitinn er bygður á, eyddist æ meir og
meir fyrir hafrótinu, svo óttast mátti að hann myndi
einhvern tíma láta undan, var þá þegar farið að byggja
nýjan vita á öðrum kletti þar hjá, er betur þykir til
fallinn. A Eddystone-vitanum falla stórsjóirnir yfir
hann eins og helliskúr. — Afl stórsjóanna á vitann
við Bell-Rock við Skotland hefir Stephenson reiknað
út að væri 17 tons (3,400 fjórðungar) fyrir hvert fer-
hyrnings- meter (eitt meter er hálf önnur alin); þessi
viti stendur síðan 1811, hann er 96 fet á hæð, 36 fet
að þvermáli að neðan, en 12 að ofan; dyrnar eru 27
fet fyrir ofan grundvöllinn, og liggur sterkur eirstigi
þangað upp. Ljósið er 20 argandskir lampar með hol-
speiglum, og snýst í hríng, hvítt og rautt á víxl; tvær
stórar klukkur hringja með afmörkuðum millibilum,
svo heyrast megi í þoku, þá er ljósið sést eigi. fessi
viti kostaði eina millíón og 290,000 krónur. — Afl sjó-
anna á Skerryvore-Rocks vitanum er talið 30^/2 tons
á hverju ferhyrnings-meter; sá viti er á milli írlands
og Suðureyja og hefir kostað enn meira en vitinn á
Bell-Rock. — Við Suðureyjar hefir hafrótið flutt 8,600
fjórðunga þungan klett um rúmlega þrjú fet; enda
vita það allir, að jafnvel stórgrýti stendur eigi í stað,
þótt minni sé sjáfargangur.
Föll og straumar. Fyrir utan ölduhreifinguna er
sjórinn annari hreifingu undirorpinn, er orsakast af
því, að jafnvægi hans verður fyrir langvinnri truflan,
og þar af koma þær hreifingar sjáfarins, er vér köll-
um strauma eður föll. þ>etta er allt annað en flóð og
fjara, þótt vér einnig köllum þau sömu nöfnum (í
strauminn, stórstraumur, smástraumur, sjáfarfall). Föll-
in eru sum ofarlega, sum neðan sjáfar, yfirstraumar og
undirstraumar; þau eru misjöfn að lengd, breidd og
skjótleik, og þau eiga sér ýmsar orsakir. f>eir vindar,