Eimreiðin - 01.01.1904, Page 14
»4
einmitt á þessum tíma var borinn og enn þá þann dag í dag er
notaður í mörgum sveitum í Noregi og einnig á Færeyjum. Hann
er og allkunnur í suðlægári löndum.
Treyjan (io c. mynd og 12.—15. mynd) var ermaþröng.
Hún féll fast að hálsinum og var svo stutt, að allbreið brún af
upphlutinum sást niður undan henni. Treyjan var sett böndum í
stórum mæli á líkan hátt og upphluturinn og auk þess framan á
ermunum.
Hér um bil samtímis því, að búningur þessi komst á, breyttist
12. —13. Búningur frá öndverðri 19. öld. (1 Forngripasafninu).
faldurinn á mjög óhagsýnan hátt í væng, sem var krókboginn og
hallaðist fram. Hann var þá nefndur skupla.
Búningur þessi var, eins og fyrri búningarnir, skreyttur breið-
um kraga, er oftast var úr útsaumuðu flosi. Samfellan var úr
klæði eða vaðmáli eins og treyjan og upphíuturinn. Hún var og
ríkulega skreytt. Með fram faldi hennar vóru lagðir vírborðar og
bryddingar úr útsaumuðu flosi Ennfremur var hún að neðan
skreytt breytilegum myndum jurta og blaða með margbreyttum
litum (16. og 17. mynd), eins og venja hafði verið um langan