Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1904, Síða 29

Eimreiðin - 01.01.1904, Síða 29
29 skinnskór. íslenzku skórnir eru búnir til úr ferhyrndu skæði úr sel, naut- eða sauðskinni, sem er saumað saman á tánum og hæl- unum. Peir eru bundnir um öklana með skóþvengjum. Oft eru þeir bryddir með hvítri skinnræmu. í skóinn er lagður prjónaður ullaríleppur; hann er oft rósóttur. Búningnum fylgja svartir ullar- bandsokkar. Yfir búning þessum er borin ermalaus kápa (mött- ull), sem oft er bryddur skinni að fornum sið (io. a mynd). Skautbúningurinn er aðeins borinn við mjög hátíðleg tækifæri t. d. brúðkaup og altaris- göngu, en sjaldnar við almennar hátíðlegar samkomur. Á sein- ustu tímum eru dæmi til þess, að íslenzkar konur hafi borið hvít- an kjól með víðum, opnum ermum við brúðkaup, en þó sams konar fald, og áður er lýst. En þá hefur brúðarblæjan verið miklu lengri, svo hún hefur numið við öklana eða jafnvel verið drag- síð. Einnig hefur þá stundum verið borinn myrtussveigur í stað ennishlaðs. Brúðurin hefur þá verið gull- fallega búin. alveg hvít- klædd og skreytt skart- gripum og mittisbelti. Skautbúningurinn hefur, eins og gamli búningurinn, einn mik- inn galla: Ríðandi konur geta eigi borið hann. Að síðustu viljum vér minnast á hversdagsbúninginn. Hann er auðvitað ekki eins skrautlegur og viðhafnarbúningurinn, en engu síður mjög laglegur. Pilsið er úr vaðmáli eða klæði; það er aldrei dragsítt. Treyjan er þröng og úr sama efni sem pilsið. Hún er venjulega skreytt flosleggingum á líkan hátt og skaut- 33. Kona í vinnufötum (á heimleið frá stöðli).

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.