Eimreiðin - 01.01.1904, Side 49
49
•okkur til bygða, og gat ég ekki betur séð en það væri af hvítum,
hreinum marmara, en hvað mikið kann að vera af þessari berg-
tegund þar eða hvernig henni kann að vera háttað, er mér ekki
kunnugt, bæði vantar mig þekkingu til að athuga það, og í það
sinni skorti mig einnig tíma til þess. En þegar kom neðar í gilið,
niður fyrir þetta umrædda belti, sást þessi bergtegund hvergi í
gilbörmunum- Pað lítur því svo út, sem hér sé lag, og það nokk-
uð þykt, að miklu eða öllu leyti af þessari bergtegund sem mest
ber á í gilbörmunum.
Eg hafði með mér hingað til Kaupmannahafnar ofurlítið sýn-
ishorn af þessari steintegund, og lét rannsaka það á »Ankerske
Marmorfabrik« við Fríhöfnina, og komust þeir, sem vit höfðu
á þeim hlutum, að þeirri niðurstöðu, að þessi steinn væri af
hreinum og allgóðum marmara, að vísu heldur linari en
norski marmarinn, en þó langt frá því vonlaust um að hann gæti
orðið að notum.
Marmari er, eins og kunnugt er, mildð notaður, bæði í myndir
og ýmsa smíðisgripi og byggingar, og getur það orðið allmikil
auðsuppspretta, þar sem mikið er af honum og hann er góður,
og gott er að komast að honum. Hann er að vísu ekki sjaldgæf
bergtegund og því ekki dýr, en er oft fallegur og þykja munir úr
honum hin mesta heimilisprýði.
Elcki er það óhugsandi, að allmikið kunni að vera af marmara
í fjallaklasa þeim, sem myndar Eyjafjalla-, Merkur- og Mýrdals-
jökla, því árnar bera alstaðar þessa hvítu steina fram úr fjöllun-
um. Eeir eru að vísu ekki allir sömu tegundar, en steinar af þess-
ari tegund, sem ég hef látið rannsaka, eru alls ekki vandfundnir.
En þótt allmikið kynni að vera til af þessari bergtegund þar í
fjöllunum, þá er eftir að vita, hvernig hún er og hvernig þar hag-
ar til. Vel getur verið, að þessi marmari séu að eins lausir steinar
innan um lag af gömlu móbergi, en líka getur það átt sér stað,
að hér sé um verulegt lag af mislitum marmara að ræða, sem
gæti orðið unninn. Petta þarf að rannsaka og er vert að rann-
saka. Eitt er víst, að það er marmari í þessum fjöllum, og
kannske fleirum fjöllum á íslandi, hvort sem hann kann að verða
að notum eða ekki.
Á fyrri hluta síðustu aldar fanst marmari í Noregi, og hefur
verið unninn þar síðan. Par sem hann á annað borð er til, er
aldrei vonlaust um að hann geti orðið arðberandi. Marmari er í
4