Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1913, Page 21

Eimreiðin - 01.05.1913, Page 21
95 sjá, að þvo á sér lappatetrin. f*ið eruð annars vön að hafa svo sem rekustungu utan á ykkur þarna í For. En hvernig stendur á því, að þú heldur þér svona til í kvöld? Ætlarðu í kaupstað- inn?« »Eg ætla á skógarhátíð á morgun. Pað ætla öll skólabörnin. Pað verður maður með, sem leikur á hljóðfæri. Og við eigum að hafa nesti með okkur, því við komum ekki heim fyr en með síð- ustu lestinni«, sagði Jón og gusaði upp vatninu með fótunum. >Hvað er a’ tarna, hvað heyri ég!« sagði Tómas veiðimaður. sTað er eitthvað annað en að rorra heima yfir súrri grautar- skál! — En á það þá ekkert að kosta?« »Ju-ú, þá sem hafa efni á því; en ég þarf nú ekki neitt að borga; svo sagði kennarinn, því hún mamma hefir talað við hann.« »Rétt er nú það! — En er Stefán bÍÁ,inn að leyfa þér að fara?« spurði Tómas. »Já, það heitir svo!« svaraði Jón dræmt. »Já, ég get því nærri, að það hafi verið harðsótt«, sagð1 Tómas brosleitur, »en það getur þú látið þér liggja í léttu rúmi, úr því að hann er búinn að leyfa þér að fara. Já, hver þremillinn! Pið verðið þá víst aö fara snemma á stað ?« »Já, við eigum að fara með morgunlestinni; því við eigum að fara framhjá þremur brautarstöðvum!« Jón sundlaði við tilhugsunina um aðra eins langferð. »Ja, rétt, sér er nú hvert ferðalagið! Jæja drengur minn, sofðu nú ekki yfir þig; því eimlestin — hún bíður svei-mér ekki eftir neinum.« Tómas rólaði áfram með fiskistöngina. Óðara en Stefán í For morguninn eftir var búinn að opna fjósdyrnar og hafði látið sína hásu raust gjalla, var Jón seztur glaðvakandi framan á rúmstokkinn og teygði sig eftir sparifötun- um, sem hann kvöldinu áður hafði lagt kirfilega á kistil fyrir framan rúmið. »Nú, þú ætlar þá undireins í sparifötin«, sagði Stefán, »ég hélt það gæti nú beðið, þangað til þú værir búinn að koma út kúnum.« Petta kom eins og skúr úr heiðskíru lofti yfir Jón. Hann

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.