Eimreiðin - 01.05.1913, Page 50
124
Ávarpið hefir skrautritað Vilh. Knudsen, en listaskraut þess alt
hefur gert ung listakona íslenzk, Kristín Jónsdóttir (frá Arnarnesi),[sem
stundar málaralist við listaháskólann í Khöfn, og hefur hún mikinn
sóma af, hve prýðilega hún hefur leyst það af hendi.
Eins og fyr var getið, var ávarpið afhent á heimili Þór. Tulini-
5. FIMTA BLAÐ ÁVARPSINS.
usar (en ekki á skrifstofu hans), og voru þar viðstödd: kona hans og
börn, bróðir hans, kaupmaður Otto Tulinius og hans kona, og enn-
fremur nokkrir danskir blaðamenn, sem frétt höfðu um, hvað fram
ætti að fara, enda komu greinar um athöfnina daginn eftir í öllum
Khafnarblöðunum. Hélt formaður nefndarinnar stutta ræðu um leið
og hann afhenti ávarpið, þar sem hann skýrði, hve mikla þýðingu
siglingastarfsemi Tuliniusar hefði haft fyrir ísland, og svaraði Tulinius