Eimreiðin - 01.05.1913, Síða 62
136
gjöf, og gjöf, sem gæta verður í baráttu lífsins. Pegar hann var
ofurlítill hnokki og nýbyrjaður að tala, sagði henn ekki, eins og
bömum er títt, »hann«, þegar hann átti við sjálfan sig, heldur
sagði hann undireins »ég« — Pú hefur ekkert ég! sagði gamla
fólkið. Pegar honum óx fiskur um hrygg, sagði hann, þegar hann
vildi fá eitthvað: »ég vil«. En þá var honum svarað:
— þú hefur engan vilja, eða: þinn vilji vex úti í skógi.
það var nú heimskulega sagt af hermanninum, en hann vissi
ekki betur, því hann var hermaður, og ekki vanur við að vilja
annað en það, sem fyrirskipað var.
Hljóm hinum unga þótti skrítilegt, að »hann hefði engan
vilja«, þrátt fyrir það, að hann hafði svona sterkan vilja; en það
varð að sitja við það.
Seinna meir spurði faðir hans hann einn góðan veðurdag:
— Hvað viltu verða?
Pað vissi strákur ekki, og hann var hættur að vilja, af því
það var bannað. Mest af öllu langaði hann til að læra að syngja,
en það þorði hann ekki að láta uppskátt, því þá var hann hrædd-
ur um, að sér yrði bannað það. Pess vegna svaraði hann, eins og
hlýðnum syni sæmir: Mér er sama.
— Vá skaltu verða vínsölumaður, sagði pabbi hans.
Hvort það nú var vegna þess, að faðir hans þekti vínsölu-
mann nokkurn, eða hins, að honum þótti einstaklega vænt um
vín, það skal ég láta ósagt. Hvað sem því líður, Hljómur hinn
ungi fékk stöðu í vínkjallara, og þar leið honum vel.
Niðri í kjallaranum angaði af rauðu lakki og frönsku víni,
og hann var hár og hvelfdur eins og kirkja. Pegar hann sat við
fatið og vínið rann í rauðum straumi, þá komst hann í gott
skap og fór að syngja allskonar vísur, sem hann hafði heyrt.
Húsbóndanum, sem vætti góminn, þótti vænt um söng og
gleði, og lét strák syngja; söngurinn lét svo vel í eyrum undir
hvelfingunni. Og þegar hann byrjaði: »Kjallarahvelfingin djúpa«,
þá komu menn til að fá sér í staupinu, og það átti nú við hús-
bónda hans.
Pá var það einn dag, að ferðasala, sem sungið hafði á leik-
húsi áður fyr, bar þar að; og þegar hann heyrði Hljóm syngja,
varð hann svo hrifinn, að hann bauð honum með sér á svakk
um kvöldið.