Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1913, Síða 65

Eimreiðin - 01.05.1913, Síða 65
139 Djöfullinn kom yfir Mr. Júbal. Hann brá grön og svaraði hryssingslega: Nei! Pá þekti vinur hans hann, og hélt leiðar sinnar. Hann var enginn heimskingi; hann þekti lífið og mennina og sjálfan sig að auki, og hann varð hvorki hryggur né hissa. En Mr. Júbal hélt hann hefði orðið það; og hann mintist orðanna: »Áður en haninn galar þrisvar, muntu afneita mér,« og hann gjörði sem Pétur; hann gekk inn í tómt porthlið og grét beisklega. Pað gjörði hann sjálfur í huga sínum, en djöfullinn í hjarta hans hló. Upp frá þeim degi hló hann oftast nær; að illu og góðu, að sorg og skömm, að öllu og öllum. Faðir hans og móðir höfðu úr blöðunum fengið að vita, hver Mr. Júbal var; en þau fóru aldrei í hljómleikahúsið, því þau héldu, að þar væru hestar, sem hlypu gegnum tunnusveiga, og annar djöflagangur, og innan um þau ósköp vildu þau ekki sjá son sinn. Mr. Júbal var nú mestur söngsnillingur allra yngri manna; og sannlega átti hann ekki mikið eftir í sér af því, sem »ég« gat kallast, en viljann átti hann óskertan. En allra daga kemur kvöld! Pað var stelputríta við dans- leikana, sem gat heillað menn, og Júbal varð heillaður meðal annarra. Hann varð svo hatramlega heillaður, að hann spurði, hvort hann mætti verða hennar . . . (Auðvitað átti hann við, hvort hún vildi verða hans, en þannig má maður nú ekki komast að orði). — Pú skalt fá að verða minn, svaraði hún, ef ég fæ. . . — Pú færð alt! greip Júbal fram í. Stúlkan tók hann á orðinu, og þau giftust. Fyrst kendi hann henni að syngja og spila; og þar á ofan fékk hún alt, sem hún vildi. En með því að hún kunni að heilla, þá vildi hún alt það, sem hann vildi ekki, og smátt og smátt náði hún vilja hans í vasa sinn. Og einn góðan veðurdag var Mrs. Júbal orðin að söngkonu; og það svo frægri söngkonu, að þegar fólkið kallaði Júbal inn á leiksviðið, þá átti það við frúna, en ekki við manninn hennar. Júbal vildi aftur ná í hásætið, en að taka það frá konunni sinni, það vildi hann ekki, og þessvegna gat hann það ekki. Og svo fór, að fólk gleymdi honum. IO

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.