Eimreiðin - 01.09.1921, Síða 4
260
SJÚIÍRAHÚSIÐ Á AKUREYRI
[EIMREIÐIN
- menn treystu Guðmundi til handanna, er enn sögð sú saga
í Evjafirði, að gömul kona hafi beðið hann að sauma í
sig nýja þvagblöðru.
Og þó sumum þætti það ljóður á hans ráði, að hann
notaði lítið af meðuium, þá var það fyrirgefið, því hér
var nýr maður með nýjum siðum og halði hnífinn í hönd-
unum. »Þér getið alveg eins vel, kona mín góð, sett plást-
1. Sjúkrahús Akureyrar eins og það nú litur út. Læknishúsið sunnanundir.
Ofan við það sést á sóttvarnahúsið.
urinn austanmegin á Vaðlaheiðina«, sagði Guðmundur við
konu, sem bað hann um diagandi plástur til að setja á
hægri síðu þar sem verkurinn var. Og maður sem kom
oa vildi fá resept upp á meðal við hæsi, fékk það svar:
»Meðul eru algerlega óþörf við þessu, maður minn. Þér
skuluð bara hafa trefil um hálsinn og halda kjafti í hálf-
an mánuð«.
En, Gainli spítalinn varð of lítill Guðmundi og Norður-
landi. Byggingin var orðin gamaldags, engin verulega
brúkleg skurðarstofa, of dimt og of þröngt og einkum var
mesta nauð að koma fárveikum sjúklingum upp og niður
stigann.
Guðmundur var þá ekki lengi að sannfæra góða menn um,
að hann ætti betri spitala skilið, og með miklum dugnaði