Eimreiðin - 01.09.1921, Blaðsíða 11
EIMREIÐIN]
Men'talifið í Kina á síðari timum.
Etlir K T. Sen.
Hr. K. T. Sen, höfundur
þessarar greinar, er fæddur
1. ágúst 1894 nálægt Shang-
hai í Kína, og var faðir
hans, Y. S. Sen, rithöfundur.
Naut fyrst mentunar í ýms-
um skólum i Ivina, en tók
sér fari til Englands árið
1913 til frekara náms, og
var ritaður inn í háskólann
í Edinborg og lauk meist-
arapróB í enskum bókment-
um. Hann stundaði frekara
nám í Cambridge 1916 o. v.
Þykir hann ágætur lærdóms-
maður, ekki síst í uppeldis-
málum, sem hann hefir lagt
mikla rækt við og svo auð-
vitað.austurlandafræðum, og
hafa honum verið falin ým-
iskonar trúnaðarstörf í pess-
um greinum. Hann ferðað-
ist til Þýskalands rétt fyrir
ófriðinn, og síðar um Frakkland og Sviss.
í marsmán. 1917 gekk hann að eiga íslenska konu, Oddnýju
Erlendsdóttur frá Breiðabólstöðum á Álftanesi, og hefir það orðið
þess valdandi, að hann hefir kynst íslandi og heimsótt oss hér.
Eiga þau son, sem Erlendur Ping-hwa heitir.
Hr. Sen hélt hér nokkra fyrirlestra, og þótti mönnum afbragð
á að heyra. Hefir Eimreiðin því farið fram á það við hann, að
hann ritaði fyrir hana grein nokkura, og birtist nú hér, það
sem hann sendi. Hr. Snæbjörn Jónsson hefir snúið greininni
á íslensku. Ritstj.
Því fer fjarri, að breyting sú á smekk manna, er vér
köllum »tísku«, sé bundin við klæðnaðinn einan. Hennar
gætir á öllum sviðum lífsins. Þannig höfum vér tísku jafn-
vel i bókum, sem í fljótu bragði virðast þegar fram líða
K. T. Sen.