Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1921, Blaðsíða 27
Vendilsýsla
27
Sagnirnar og getgáturnar um uppruna Cimbra, Van-
dala og Langbarða eru auðvitað á reiki, en víst er það,
að í Vendilsýslu hefur ávalt búið herská og hraust þjóð,
og altaf hefur lifað kröftugri uppreisnar- og frelsisandi
hjá Vendilbúum en hjá öðrum Jótum eða Eydönum, og
vil jeg færa nokkur rök fyrir því úr sögunni.
Fornaldarsögur og hetjusögur minnast á ýmsa kappa
í Vendilsýslu, þar á meðal Göngu-Hrólf konung, herkon-
unginn Sigtrygg og sækonunginn Vóðar. Óefað hafa
margir þeirra víkinga, sem herjuðu á England og Frakk-
land, verið frá Vendilsýslu, og hvergi í Danmörku eru
fleiri fornmannahaugar, grafstaðir konunga, kappa og vík-
inga, en hjer, því um 2500 hauga eru nú friðhelgaðir um
alla sýsluna.
í Limafirði voru oft háðar sjóorustur í fornöld. I
Jómsvíkingasögu segir frá, að Haraldur blátönn hafi
drepið þar bróður sinn Knút Danaást. Sjóorusturnar
milli Gull-Haralds og Haralds gráfelds og seinna á milli
Gull-Haralds og Hákonar jarls voru einnig háðar í Lima-
firði. Haraldur harðráði herjaði oft bæði við austurströnd
Vendilskaga og í Limafirði, en varð seinna að flýja það-
an út í Vesturhaf fyrir Sveini konungi Ástríðarsyni.
Um miðja 11. öld segir sagan, að íslendingurinn Refur
Steinsson kæmi á fund Sveins konungs Ástríðarsonar. Hann
hafði áðurkomið til Noregs og Haraldur harðráði gaf honum
þá nafnið Króka-Refur. Refur færði Sveini konungi
mikla grávöru og fálka og birni, en konungur gaf honum
aftur á móti stóran gullhring og 12 bú á Vendli, segir
Króka-Refs saga, og þar bjó hann lengi, en andaðist í
Frakklandi á pílagrímsferð til Rómaborgar. Refur átti
þrjá sonu, Pormóð, er fór heim til íslands, og Björn og
Steín, sem ólu aldur sinn í Danmörku. Sagt er að bræðurnir
Absalon biskup og Ásbjörn snari hafi verið niðjar Steins.