Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1921, Page 47
Vendilsýsla
47
an á sumrin, einkanlega þau hjónin Peter Nansen og
Betty Nansen og skáldið Herman Bang. Pegar Johan
Knudsen flutti burt frá Bangsbú, gaf hann Friðrikshöfn
mikinn lystigarð og Bangsbúmylluhús til eignar og af-
nota. Fyrir sunnan og uppfrá Bangsbúi eru háar hæðir
að austanverðu, hinar svonefndu Pikkerhæðir (sjá mynd).
Frá þessum hæðum er víðsýni mikið yfir bæinn og alt
nágrennið og út yfir sjóinn til Hljeseyjar og Hirtshólma.
Dónbækhólar í nágrenni Friðrikshafnar.
Fyrir vestan þessar hæðir kemur hinn stóri Vrangbæk-
dalur, sem Bangsbúá rennur yfir. Ain er full af urriðum,
álum og otrum, en í skógunum kringum hana er mikið
af hjerum, tóum, rádýrum, greflingum, mörðum, herme-
línum, íkornum, leðurblökum og alls konar fuglum, svo
sem náttuglum, músvogum, fösönum, skógdúfum og
margskonar söngfuglum. Vesturhlíðar Vrangbækdalsins eru
kunnar vegna náttúrutegurðar. Einkum eru Dónbækhólar
stórfengilegir. Pegar lengra dregur í suðvesturátt liggur
leiðin eftir mörgum þröngum skógvöxnum giljum, uns