Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1921, Blaðsíða 64
64
Vald. Erlendsson
Oxholm er eyja í Limafirði, er heyrir til Vendil-
sýslu. Par var klaustur á miðöldunum. Nú býr þar son-
ur etasráðs H. N. Andersens, sem mörgum íslendingum
er kunnur. Ástríður kona hans er sonarsonardóttir Boga
Benediktssonar á Staðarfelli, sem ritaði Sýslumannaæfir
og Feðgaæfi. — Járnbrautarbrúin yfir Limafjörð er eitthvert
mesta mannvirki í Danmörku, og nú á þó bráðum að
byggja nýja brú yfir fjörðinn.
í Vendilsýslu eru nokkrir lýðháskólar svo sem í
Horni, nálægt Hirtshálsi, og í Vraa, og nokkrir landbún-
aðarskólar. Vendilbúar eru yfirleitt allvel mentaðir og á
síðustu öld hefur mikið trúarlíf og trúarbragðahreyfing verið
í sýslunni, og næstum allir trúarbragðaflokkar heimsins
hafa söfnuði hjer, en mest ber þó á innratrúboðinu og
Grundtvigsstefnunni. En það eru líka margir meþódistar,
endurskírnarmenn, aðventistar og mormónar nokkrir.
Pjóðþingmaður og fyrverandi ráðherra, Thomas Larsen,
hefur ritað merka bók um trúarlíf og menningarsögu
Vendilsýslu, og ætlar að gefa út fleiri bækur um andlegt
líf og stjórnmálabaráttu sýslunnar á 19. öld. Thomas
Larsen var sjálfur einvirki og smiður í Lendum sveit,
skamt frá Friðrikshöfn, áður en hann gerðist þjóðþing-
maður, og á hann aðeins dugnaði sínum og gáfum upp-
hefð sína að þakka.
í stjórnmálum hafa Vendilbúar ávalt verið frjálslynd-
ir, harðsnúnir og kröfuháir, eins og sýnt hefur veriðfram
á í upphafi þessarar greinar. Peir vildu aldrei samþykkja
ríkisstjórnarskrá Dana frá 1866, af því að þeim þótti hún
of íhaldssöm.
Mannfjöldi Vendilsýslu er um 150000. í*ar eru fimm
kaupstaðir og er í-Hjörring 12000, Friðrikshöfn 10000,
Brönderslev 5000, Skaga 3500 og Sæbæ 2500 íbúa.