Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1921, Page 127
Skúli hjeraðslæknir Thorarensen
27
að hann hefði gefið sig mikið við almennum fjelags- eða
framfaramálum. Hann var þingmaður Rangæinga 1845, og
mun ekki hafa fallið það starf.
Skúli læknir fæddist að Hlíðarenda 28. mars 1805, varð
stúdent 1824, fór til Hafnar 1828, tók háskólapróf í læknis-
fræði 1834 og sama ár skipaður hjeraðslæknir í Ámess-,
Rangárvalla- og Skaftafellssýslum. Gengdi því embætti með
stökum dugnaði sem áður sagt, þar til hann sagði af sjer
1869 og andaðist 1. apríl 1872 þrotinn að heilsu og eftir
miklar þjáningar.2)
Fyrir óþreytandi dugnað sinn var Skúli sæmdur kansellí-
ráðs nafnbót og gjörður riddari af Dannebrog.
Finnur Jónsson frá Kjörseyri.
') Fóstursonur og frændi Skúla læknis, sem hjer er átt
við, var Skúli, yngsta barn Bjarna Thorarensens. Skúli læknir
tók hann til fósturs nokkru eftir fráfall bróður síns. Skúli
Bjarnason Thorarensen var fæddur 23. maí 1840 og hjet eftir
»_gamla Skúla Thorlacius« (d. 1815). Hann andaðist snemma í
júlí 1853 í Reykjavík, og er þar grafinn skamt fyrir norðan
líkhúsið við hliðina á frú Solveigu Thorarensen móðursystut
sinni. Var hvítur marmarasteinn, heldur þunn hella, á leiði
hans, sem Skúli læknir ljet setja, en nú er hún brotin og
burtu brotin mestöll, er jeg kom þar síðast. Skúli Bjarnason
var óvenjulega vel gáfaður drengur og hinn mannvænlegasti f
alla staði. Jeg á eitt brjef frá honum til móður minnar, dagsett
27. júní 1852, og minnist jeg þess eigi, að hafa sjeð jafn-
fagra rithönd eftir nokkurn svein 12 vetra. Sumarið 1853
reið Skúli læknir með fóstra sinn suður í Reykjavík, og átti
hann að ganga undir inntökupróf í latínuskólanum. En í
Reykjavík tók Skúli hinn ungi sótt og andaðist eftir stutta
legu. Andlát hans fjell fóðurbróður hans mjög nærri. f'á
er hann reið frá jarðarför hans, fór hann í einum áfanga
austur að Móeiðarhvoli og vildi við engan mann mæla á
leiðinni; reið hann jafnan utan götu, er hann sá mann koma.
Það heyrði jeg og sagt, þá er jeg var drengur, að hann hafi
þá riðið utan götu niður alla Kamba, og var það haft eftir
manni, er mætti honum neðarlega í Kömbum og hann nafn-
greindur, en eigi man jeg nú hver sá maður var.
2) Skúli læknir hugði, að hann mundi verða bráðkvadd-
ur eins og faðir hans og bróðir, flestir föðurbræður hans
(Stefán amtmaður Thorarensen og bræður hans) og fleiri
frændur. Þá er frændi hans sjera Sigurður Thorarensen dó