Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Page 8
NÆRINGARÞÖRF
Öll dýr þarfnast næringar — til viðhalds og afurðamyndunar.
f fóðurfræðinni er annars vegar rætt um orkuþörf og hins
vegar efnaþörf dýranna, öðru nafni fóðurnorm. f fóðrinu
verða húsdýrin að fá næringarefnin prótein, vítamín og
steinefni. Asamt orku eru þessi efni dýrinu nauðsynleg til að
halda uppi eðlilegri lífsstarfsemi og afurðamyndun. Skortur
getur valdið afurðaminnkun og jafnvel efnaskiptatruflunum
og hörgulsjúkdómum. Að magni til eru orka og prótein mik-
ilvægust. í töflu nr. 1 eru gefin ýmis fóðurnorm mjólkurkúa.
Orkuþörf.
Efnaorka fóðursins er fyrst og fremst fólgin í aðalnæringar-
efnaflokkunum þremur, þ.e. kolvetnum, fitu og próteinum.
Melting og umbreyting þessara efna veitir skepnum orku og
byggingarefni til hinna margvíslegu þátta lífsstarfseminnar.
Þó svo að líkami skepnu hagnýti efnaorku fóðurs vel, þá
tapast alltaf einhver hluti hennar í saur og þvagi, með gasi eða
sem vannýtt varmaorka. Heildarorka fóðursins skiptist
þannig í meltanlega og ómeltanlega orku. Meltanlegi hlutinn
skiptist síðan í breytiorku og nettóorku. Nettóorkan er þannig
sá hluti heildarfóðurorkunnar, sem loks notast skepnum til
viðhalds, vaxtar og fóstur- og afurðamyndunar, t.d. til
mjólkurmyndunar hjá kúm. Orkuinnihald fóðursins er mælt í
fóðureiningum (FE) og er ein fóðureining skilgreind sem sú
nettóorka, er felst í einu kg af byggi.
Orkuþörf til viðhalds er háð stærð skepnunnar, þannig að
stærri kýr þarfnast meiri orku en þær smærri. Kýr sem vegur
400 kg á fæti þarfnast daglega u.þ.b. 3,5 FE til viðhalds, en
500 kg kýr þarf 4,0 FE. Yfir árið þarf stærri kýrin þannig
u.þ.b. 185 FE meira til viðhalds en hin. Aukist líkamsþungi
vegna þess að kýr fitna, eykst einnig orkuþörf til viðhalds.
Hvort tveggja er mikilvægt að hafa í huga við útreikning á
fóðurþörf.
Svo sem flest önnur húsdýr er búið með mjólkurkýr vegna
10