Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Blaðsíða 52
Að venju fór ég á ráðunautafund Rala og BÍ, sem nú var
haldinn dagana 2.-6. febr. s.l.
Þá voru sóttir ýmsir aðrir fundir varðandi mál bænda svo
sem fyrr. Má þar nefna stjórnarfundi Rala, bændaklúbbs-
fundi Eyfirðinga, aðalfundi búnaðarsambanda eftir því sem *i
tækifæri gafst o.fl.
Útgáfa og ritstórf.
Ársritið kom út í nóvember og að þessu sinni tveir árgangar
saman, fyrir árin 1979 og 1980. Ritið var 142 bls. að stærð og í
því greinar um m.a. búnaðarmenntun íslendinga, hag-
kvæmni í sauðfjárrækt, grænfóður og jarðveg. Auk þess frá-
sögukorn eftir undirritaðan um ferð til Norður-Noregs á
miðsumri 1979. Eg skrifaði smápistil um Ræktunarfélag
Norðurlands í blað nemenda Búvísindadeildar á Hvanneyri,
sem þeir nefna Búvísund. Önnur ritstörf en ofannefnd eru
ekki fram talin.
Yrnis störf.
Ýmsar tillögur voru samþykktar á síðasta aðalfundi og var
reynt að afgreiða þær eftir bestu getu. Tillögur um Hólaskóla
og um úrbætur varðandi meðferð og sölu landbúnaðarafurða
voru sendar viðkomandi aðilum.
Keypt hafa verið tæki til mælinga á loftstraum upp úr heyi
i súgþurrkunarhlöðum. Áætlað er að kaupa fleiri tæki til
mælinga á súgþurrkun en til þessa fékkst styrkur úr Fram-
leiðnisjóði að upphæð kr. tuttugu og fimm þúsund.
Unnið hefur verið að gerð fræðslubæklings í samræmi við
samþykkt og fjallar hann um vetrarfóðrun mjólkurkúa. Sú er
nú hugmynd að grein um þetta efni verði aðaluppistaða í
næsta ársriti, sem áætlað er að út komi í haust.
Um afgreiðslu annarra tillagna vísast til skýrslna félaga
minna og stjórnar.
Samþykkt var á stjórnarfundi í nóv. s.l. að halda áfram
vörusölu eftir pöntunum i líku formi og verið hefur. Því voru
pöntunarlistar sendir út í desember og pöntun frá Rf. send i
54