Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Side 13

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Side 13
Mynd 1. Magi jórturdyra: Fóður kemur lítið sem ekkert tuggið um vélinda (S) - vömb (V). Fínni hluti fóðursins fer í keppinn (N). Grófari hluti þess (tréni) fer aftur til jórturs og berst vel tuggið aftur til vambar ( V) og þaðan ásamt fínni hlutanum úr kepp (N) um laka (B) vinstur (L)yfir i mjógirni (T) og áfram. skepnum fyrir nægu D-vítamíni. Til öryggis er skynsamlegt að gefa A- og D-vítamín aukalega eftir sólarlítil og slæm heyskaparár. Efnaskipti í vömb. Kýr eru jórturdýr. Þær eiga því auðvelt með að melta og umbreyta næringarefnum í algengustu tegundum gróffóðurs, svo sem grasi, votheyi og þurrheyi. Slíkt gróffóður er mönnum og einmaga dýrum lítils sem einskis virði. Þessi eiginleiki jórturdýra skapast af því, hver þróun hefur orðið á maga þeirra, ásamt því að örverur vambarinnar annast mikinn hluta meltingarinnar. Magi jórturdýra skiptist í 4 hluta, vömb, kepp, laka og vinstur (Sjá mynd 1). Hinir 3 fyrstu nefnast einu nafni formagi, en vinstur samsvarar maga ein- maga dýra. Vömb og keppur eru u.þ.b. 70% af heildarrúm- máli magans og rúma í fullorðinni kú 200-250 1. Þessir hlutar magans eru lítt aðskildir, og vinna saman. I þeim lifir aragrúi örvera, fyrst og fremst gerlar og einfrumungar. Þessar örverur eru sérstaklega aðlagaðar lífi í maga jórturdýra. Þar skortir 15

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.