Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Síða 15

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Síða 15
myndun í vömb stendur í beinu sambandi við heildarefna- breytingar í henni, þar sem myndunin eykst með aukinni fóðurneyslu á meltanlegum lífrænum efnum. Orku- og próteinumbreytingar í vömb hafa í för með sér bæði kosti og galla fyrir fóðurnýtingu kýrinnar. Af gerjun stafar orkutap, bæði í formi lofttegunda og sem varmi. Slíkt orkutap er hverfandi lítið í þörmum og í maga einmaga dýra. Kostir vambargerjunar eru fyrst og fremst fólgnir í nýtingu gróffóðurs, sem væri dýrinu annars ónýtanlegt. Þar af leiðir að gerjunin hefur því meiri þýðingu sem hlutur gróffóðurs er stærri. Höfuðkostur gerjunar varðandi prótein er sá, að dýrið getur nýtt köfnunarefnissambönd sem ekki teljast eiginleg prótein (Non-Prótein-Nitrogen eða NPN). Af slíku köfnun- arefni er yfirleitt mikið í grasi og öðru fóðri með lágu þurr- efnisinnihaldi. Aðalgallinn er hins vegar sá, að eiginlegt prótein er einnig brotið niður í vömb, og tapast að hluta. Það prótein myndi því nýtast betur með annars konar meltingu. Um víða veröld er unnið að því að koma í veg fyrir slíka eyðileggingu á dýrmætu próteini í vömb. í stuttu máli — að nýta kosti vambargerjunar og koma jafnframt sem mest í veg fyrir ókosti hennar. Hefur athyglin einkum beinst að því, hvernig koma megi þessum dýrmætu próteinum heilum úr greipum örvera og aftur í þarma. Dæmi um innlendar fóður- tegundir, sem innihalda dýrmætt prótein er fiskimjöl og graskögglar. Hafa próteingæðin aukist við hitameðferð þessa fóðurs við þurrkun, og hugsanlega einnig við kögglunina sjálfa. Mikilvœgi fóðursamsetningar. Náttúruleg fæða jórturdýra er gras og annað gróffóður. Hin flókna vambargerjun á sér langa þróunarsögu hjá þessum jurtaætum. Kýr eru aðeins ein af mörgum jórturdýrategund- um, en hafa mikla þýðingu sem framleiðendur matar fyrir mannkyn. Meðal annarra jórturdýra má nefna húsdýr eins og sauðfé og geitur, og villt dýr svo sem hreindýr. Ef jórturdýr nærast á venjulegu gróffóðri, verka vambar- gerlarnir oftast eðlilega. Nútíma landbúnaður gerir miklar 17

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.