Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Síða 20

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Síða 20
tökum á notkun hennar. Þurrkun á velli án súgþurrkunar miðast við að ná rakastigi heysins úr 80% (við slátt, sé þurrt á) niður í 20% (sem telst vallþurrt hey). Með tilliti til næringar- taps er hagkvæmast að hirða heyið við 35-45% rakastig og súgþurrka það síðan. Sé heyið bundið er ekki rétt að rakinn fari yfir 40%. Það er einmitt á þessu síðasta bili þurrkunar- innar, sem efnatapið er mest, og skyldu bændur því líka nota súgþurrkunina í þurrkasumrum. Mikilvægt er að blása alltaf það mikið, að aldrei myndist hiti í heyinu. Þar sem ódýr jarðvarmi er fyrir hendi, er sjálfsagt að nýta hann til að auka afköst súgþurrkunarkerfisins. Vothey. Verkun í vothey gefur góða möguleika á slætti á meðan grasið er ungt og næringarríkt. Það er sú verkunaraðferð, sem veð- urfarið hefur hvað minnst áhrif á. Þó er rétt að geta þess, að þurrkur og sólskin eykur sykruinnihald grassins og léttir verkunina. Tilgangur votheysverkunar er að varðveita ungt gras og annað grænfóður við lágmarksnæringartap, þannig að fóðrið sé lystugt og nothæft allan innistöðutímann. Efni í ferskum plöntum gerjast auðveldlega. Margs konar örverur taka þátt í þeirri starfsemi. Ekki eru þær allar jafn- æskilegar. Við votheysverkun er reynt að skapa þeim æski- legustu góðar aðstæður, og hindra samtímis viðgang hinna skaðlegu. Einkum er sóst eftir hinni svonefndu mjólkursýru- gerjun. Mjólkursýrugerlar framleiða mjólkursýru úr auð- meltum kolvetnum. Við það súrnar votheysmassinn. Þegar sýrustigið er komið niður fyrir pH 4 stöðvast efnabreyting- arnar. Massinn er þá orðinn nógu súr og mun haldast stöð- ugur. Við vel heppnaða verkun hefur mjólkursýrugerjun yfirhöndina, m.a. vegna þess að mjólkursýrugerlar þola hið súra umhverfi mjög vel. Einkum er það smjörsýrugerjun, sem ber að varast, þar sem hún veldur næringartapi og lakari gæðum fóðursins. Gott vothey ætti að innihalda 1-1,5% mjólkursýru, eitthvað af ediksýru og maurasýru, en sem allra minnst af smjörsýru, helst ekki í mælanlegu magni. Má hér sjá 22

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.