Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Side 22

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Side 22
* senda þess að hægt sé að nýta ýmislegt heimaaflafóður yfir veturinn. Auk hefðbundins túngróðurs eru ýmsar aðrar jurtir ræktaðar til votheysgerðar. Má þar einkum nefna rýgresi, hafra og e.t.v. annað grænfóður. Sykruinnihald repju og fóð- urmergkáls er hátt, þannig að verkun án íbætiefna er auðveld, en á móti kemur að vatnsinnihald þeirra er hátt, svo að mikið næringartap verður með afrennsli. Graskögglar. Vélþurrkun grass fer vaxandi, og er þá framleiðslan einkum notuð í stað innflutts kjarnfóðurs. Graskögglar eru þó ekki eins orkuríkt fóður og kjarnfóðurblöndur, en hafa að tals- verðu leyti getað komið í stað þeirra við fóðrun mjólkurkúa. I samanburðartilraunum á notkun grasköggla og kjarnfóðurs hefur verið sýnt fram á, að í mörgum tilfellum örva gras- kögglar mjólkurmyndun, þannig að þó að étnar fóðureining- ar séu færri, geta kýr mjólkað meira „af sér“, án þess að missa lyst og heilsu. Einkum hefur reynst vel að gefa grasköggla með votheyi. Hafa rannsóknir sýnt, að próteinið í þeim er fremur torleyst, og sleppur því að verulegu leyti við niðurbrot af völdum vambargerla. Svo sem við aðrar verkunaraðferðir á grasi eru gæðin mest ef kögglarnir eru framleiddir úr því snemmslegnu. Heykógglar. Þegar talað er um heykögglun er einkum átt við mölun og kögglun á heyi. Helstu kostir heykögglunar eru bætt nýting þurrefnis (þar sem minna fer til spillis, t.d. sem moð) og aukin átgeta. Sterkar líkur benda til að, auk átgetu, aukist nýtanleg orka heysins einnig við kögglun. Þessi áhrif verða því meiri sem heyið er lélegra. Þetta gildir að sjálfsögðu einnig um grasköggla. , Enn sem komið er hefur heykögglun átt litlu fylgi að fagna hér á landi, en þó mun einhver hreyfing vera á þeim málum. Kostnaður við tækin er meiri en svo að viðráðanlegt sé fyrir einstaka bændur, enda notkunin ekki svo mikil að hún rétt- 24

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.