Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Page 36

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Page 36
matarsalt. Þá hafa flestir lýsi og eitthvað af þangmjöli til sölu. KEA og Kf. Svalbarðsstrandar á Akureyri hafa yfirleitt haft hreint kalíumklóríð til sölu vegna sérstakra kalískortstilfella í kúm. GERÐ FÓÐURÁÆTLANA OG ATGETA Ymislegt þarf að athuga við gerð fóðuráætlunar, ekki síst þegar mjólkurkýr eiga í hlut. Því nákvæmari, sem fóðrunin á að vera, þeim mun fleiri þátta þarf að taka tillit til. Fóðurþörf þarf að vera þekkt, þá fóðurgildi og efnainnihald fóðursins og síðast en ekki síst átgeta kýrinnar. Hægt er að fara nokkuð nærri um hina tvo fyrst nefndu þætti, úr töflum um fóður- norm og efnainnihald eða fóðurefnagreiningum, en átgeta er erfið viðureignar, eins og ráða má af spjalli um það efni fyrr í greininni. Við gerð fóðuráætlana er mjög knýjandi að vita átgetuna, enda er mjög undir henni komið, hvort hægt er að ná fóðurþörfum með ákveðnu fóðri við ákveðnar aðstæður. Þótt ýmsar tölur og formúlur um átgetu hafi verið gefnar og miðað er við lifandi þunga, nythæð, fóðurgildi, gerð fóðurs, gjafarlag o.fl. er þetta sá þáttur, sem hver bóndi verður end- anlega að finna að miklu leyti sjálfur fyrir kýr sínar, hverja og eina. í þessu sambandi má raunar segja að íslenskir bændur hafi verið á undan sinni samtíð fyrir svo sem hálfri öld, en þá tíðkaðist víða að vigta hey og annað fóður í kýrnar. Þótt nánast sé ógerningur að gefa dæmi um fóðuráætlun, sem hægt er að nota beint, verður þó gerð tilraun til að sýna fram á ýmis atriði hér að lútandi miðað við ákveðnar forsendur. Aður en lengra er haldið er vakin athygli á, að þar sem átgeta skepna er mæld í kg af þurrefni á dag er æskilegt að bændur tileinki sér þennan mælikvarða. I dæmum hér á eftir verða því yfirleitt gefin kg fóðurs og ásamt kg þurrefnis í því, ef það mætti verða til að auðvelda mönnum þessa hugsun. 38

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.