Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Síða 61
dag eru ráðleggingar um fyrirbyggjandi aðgerðir gegn kali
nákvæmlega þær sömu og fyrir 10-20 árum, almennar leið-
beiningar um beit, slátt, áburð, umferð og grastegundir. Enda
þótt tíðni og útbreiðsla kalskemmda fari vaxandi, þá hefur
nær engu fjármagni verið varið sérstaklega til rannsókna á
kaláhrifum framangreindra þátta, en ætíð gripið til kostnað-
arsamra bjargráða þegar í óefni er komið.
Rannsókna- og tilraunastarfsemin á að vera brautryðjandi,
rannsaka nýjar aðstæður, aðferðir og viðhorf áður en þeim er
hrundið í framkvæmd. Á þann hátt getur tilraunastarfsemin í
smáum stíl tekið á sig áföll og afleiðingar sem annars gætu
dunið yfir bændur landsins. Hér hafa forsjármenn rann-
sóknarstarfseminnar greinilega sofið á verðinum. Flestir
bændur landsins hafa orðið fyrir einhverjum búsifjum af
völdum kalskemmda, en rannsóknamenn og ráðunautar
standa enn í sömu sporum. Þetta er alls ekki eina dæmið um
eftirlegu rannsóknastarfsemi landbúnaðarins, en þó e.t.v. það
alvarlegasta. Eðlilegast hefði ég talið að Rannsóknastofnun
landbúnaðarins tæki alfarið að sér þessar mikilvægu rann-
sóknir, jafnvel þó verið hefði á kostnað annarra rannsóknar-
verkefna, en á því var enginn kostur. Það er því enn eitt
dæmið um lífsþrótt Ræktunarfélagsins að það skuli ganga
fram fyrir skjöldu og taka þessar rannsóknir upp á sína arma.
Það hefur áður gerst að þetta aldurhnigna, en þó síunga félag,
ryðji brautina fyrir aðra sem síðan taka við. Vona ég að svo
verði einnig í þetta sinn, að rannsóknir þessar verði síðar á
vegum réttra aðila og Ræktunarfélagið geti þá snúið sér að
öðrum verkefnum svo sem sönnum brautryðjanda sæmir.
Eins og ég nefndi áður, þá er þetta rannsóknaverkefni
unnið í samvinnu milli Ræktunarfélagsins og Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins. Mun Rannsóknastofnunin vænt-
anlega leggja til starfsaðstöðu, þ.e. tilraunaland og húsnæði
til frysti- og svelltilrauna. Hefur þessari aðstöðu verið hugs-
aður staður í Eggertsfjósinu á Möðruvöllum eftir að kýrnar
verða fluttar í tilraunafjósið nýja, en það hefur svo sem menn
vita dregist allt of lengi. Ræktunarfélagið mun leggja til að-
63