Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Page 67

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1981, Page 67
fyrirsjáanlegt að veruleg endurnýjun verður að fara fram á útihúsabyggingum. Túnræktun hefur verið mikil á Hólum s.l. tvö sumur. Að lokum ræddi Jón um tengsl búnaðarnámsins við rannsóknir og tilraunir í landbúnaðinum. Einnig tengsl skólans við bændur og að þýðingarmikið væri að Rfl. Nl. stuðlaði að því, að bændur á svæði þess standi fast saman um uppbyggingu skólans. Björn Þórðarson ræddi um Hólaskóla og minntist fyrri skólastjóra hans. Björn taldi það ekki heiglum hent að endurreisa skólann til vegs og virðingar, en lét í ljós þá von sína að nýjum skólastjóra takist það. Þá benti hann á nauðsyn þess að byggja sundlaug á Hólum. Kosning nefnda. Eftirfarandi skipun í nefndir fór fram: Fjárhagsnefnd: Haukur Steindórsson, Teitur Björnsson, Eggert Ólafsson, Aðalbjörn Benediktsson, Gunnar Oddsson, Guðbjartur Guðmundsson, Stefán Skaftason, Sveinn Jónsson, Björn Þórðarson, Guðmundur Jónasson. Allsherjarnefnd: Ari Teitsson, Grímur B. Jónsson, Jóhann Guðmundsson, Guðmundur H. Gunnarsson, Þorsteinn Davíðsson, Stefán Halldórsson, Ólafur G. Vagnsson, Jón Sigurðsson, Gunnar Ríkharðsson, Þórarinn Sólmundarson. 69

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.