Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Side 56
Rófurnar eru teknar upp með handafli, kálskornar, skottaðar
og fluttar heim á vagni. Þá eru þær þvegnar og settar blautar
í geymslu. Sagt hefur verið að skottaðar og þvegnar rófur
geymist illa, ekki er það mín reynsla. Ef geymslan er góð og
rofurnar heilbrigðar, má geyma þær fram á næsta sumar.
Hitastig í geymslu þarf að vera niður undir frostmarki og
mikill loftraki.
Mest af rófunum hef ég lagt inn í kaupfélögin hér í kring,
KEA, KÞ og KSÞ. Venjulega sendi ég mest í október og
nóvember og svo fram eftir vetri eftir því sem uppskeran
endist. Verð er mjög breytilegt og fer mest eftir framboði. Sé
góð spretta og margir með rófur má búast við mjög lágu
haustverði, mun lægra en á kartöflum, síðan fer verðið
venjulega hækkandi þegar líður á veturinn og getur verið
nokkuð hátt í apríl og maí. í október 1981 var verðið kr. 5,50
kg til framleiðanda, í maí 1982 var það 11,00 kr., en í október
sama ár var það 7,20 kr., eða um 30% hækkun frá hausti til
hausts. Á sama tíma hækkaði verðlagsgrundvöllur land-
búnaðarvara um rösk 57%. Sé ræktun á kartöflum annars
vegar og gulrófum hins vegar borin saman virðist mér að verð
á gulrófum sé heldur óhagstæðara, þær eru eitthvað vinnu-
frekari. Rófur eru hins vegar mun árvissari en kartöflur, þar
sem einstök næturfrost valda þeim ekki teljandi skaða.