Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Blaðsíða 17
aðalfundar Ræktunarfélags Norðurlands sumarið 1981, hún
var færð á vettvang þar af Birni Þórðarsyni, fulltrúa á fund-
inum.
Innan nemendahópsins var hugmynd þessi könnuð nánar
og snemma árs 1982 var úr hópi búfræðinga frá Hólum kjörin
nefnd 5 manna, er safna skyldi fjármagni og verja því til þess
að gera sundlaug, sem afhent yrði fullbúin við virðulega at-
höfn á Hólahátíð þegar 100 ára afmælisins yrði minnst. Ötult
starf þessarar nefndar sýndi þann árangur, að fjármunir
streymdu að frá Hólamönnum, öðrum velunnurum Hóla-
staðar og nokkrum stofnunum svo að af framkvæmdum varð
með miklum sóma, og strax þann 18. apríl 1982 var tekin
fyrsta skóflustungan að sundlaug úr plasti á stálramma,
norðan við íþróttahúsið.
Afmœlishátíðin.
Samkvæmt ákvörðun var hátíðin haldin 4. júlí 1982. Á
stofnunardegi skólans, hinn 14. maí, var einnig haldin sam-
koma og mættu þar ýmsir flytjandi afmælisóskir og úr fjar-
lægð komu skeyti og margar kveðjur af sama tilefni.
Strax laugardaginn þann 3. júlí stefndu heim að Hólum
300-400 manns á undirbúin tjaldstæði og stórstreymi mann-
safnaðar kom að sjálfsögðu til viðbótar næsta dag. Hátiða-
höldin fóru svo fram sem nú skal greint í stórum dráttum:
Árla dags, þann 4. júlí lagði skólastjóri blómsveig að
minnismerki fyrsta skólastjórans, Jósefs J. Björnssonar. Á
Sauðárkróksflugvelli tók skólastjórinn á móti forseta Islands,
Vigdísi Finnbogadóttur, kl. 10. Klukkan 11 var hin nýja
sundlaug vígð og tekin í notkun af búfræðingum frá 1982 og
börnum staðarins, en laugin er 8x16% m að flatarmáli á
yfirborði, með eðlilegri aðstöðu til nýtingar og sundnáms.
Formaður fjáröflunarnefndarinnar, Gísli Pálsson bóndi á
Hofi í Vatnsdal, afhenti laugina sem gjöf frá búfræðingum
Hólaskóla og öðrum velunnurum, en hana vígði Sigurður
Guðmundsson, vígslubiskup og biskup Islands, herra Pétur
Sigurgeirsson, lýsti þar blessun.
Að loknum hádegisverði hófst svo hátíðarhaldið í dóm-
19