Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Blaðsíða 126
6. Kl. 15.00 tekið fyrir erindi dr. Halldórs Pálssonar sem frestað var að
loknu matarhléi.
Dr. Halldór Pálsson flutti erindi um þróun sauðfjárræktar sl. 100 ár.
Fjallaði hann um þróun markaðsins allt frá sölu lifandi sauða fyrir gull
til þessa dags. Einnig rakti hann leiðbeiningar í sauðfjárrækt og hvernig
einstakir ráðunautar mörkuðu ræktunarstefnur. Þá fjallaði dr. Halldór
um tilurð þess sölu- og markaðskerfis sem nú er við lýði. Framsögu-
maður gagnrýndi nokkuð „úrvinnsluaðila landbúnaðarins“ fyrir að
sofa á verðinum og gæta ekki fyllstu hagsýni, en ætlast til að bændur
legðu til ódýrt hráefni. Nefndi hann til dæmis að Álafoss h.f. sé að vinna
ullarmarkaðinn af samvinnufélögunum, m.a. vegna tregðu þeirra síð-
arnefndu til að greiða strax fullt verð fyrir ullina.
Dr. Halldór taldi ekki tímabært að gefast upp við að framleiða
sauðfjárafurðir til útflutnings þó nú verði að draga saman í bili. Taldi
hann mögulegt að ná meiri hagræðingu á öllum stigum framleiðsl-
unnar svo og í markaðsöfluninni. Þetta samdráttartímabil kvað hann
hægt að brúa með hagsýni, íhlaupum í önnur störf, nýjum búgreinum
s.s. loðdýrarækt, fiskeldi og skógrækt.
Að loknu kaffihléi svaraði dr. Halldór fyrirspurnum frá Þórarni
Lárussyni, Aðalbirni Benediktssyni, Jóhanni Helgasyni, Agli Bjarna-
syni og Eggert Ólafssyni.
Megininntak í lokasvari hans var að halda vöku sinni og kunna
verkin sem menn vinna.
Nefndahlé.
7. Allsherjarnefnd. Framsögumaður Ari Teitsson.
A. Aðalfundur Ræktunarfélags Norðurlands haldinn að Hólum 9.
september 1982 felur stjórn Ræktunarfélags Norðurlands að ganga
til samninga við Rannsóknarstofnun landbúnaðarins um upp-
byggingu og rekstur Tilraunastöðvarinnar á Möðruvöllum ÍI í
Hörgárdal á grundvelli þeirra samningsdraga sem fyrir liggja.
Samþykkt samhljóða.
Sammngsdrög milli Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Rœktunarfélags
Norðurlands.
1. gr. Tekið skal upp samstarf milli Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins (RALA) og Ræktunarfélags Norðurlands (RN) um
uppbyggingu og rekstur Tilraunastöðvarinnar á Möðruvöllum fl í
Hörgárdal.
2. gr. RN tekur Möðruvelli II á leigu ásamt húsum, tækjum og
gripum með þeim kvöðum og réttindum sem því fylgja. Leigusali
skal gefa leigutaka heimild til veðsetningar. RN greiðir engin
leigugjöld og tekur við jörðinni við undirskrift leigusamnings. Skal
128