Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Page 95
samforum, C. Linnæi Amoenit. Acad. Vol. I. Lugd. Batav. 1749, de Spontaliis plantarum ,
af mér útlagt á Dönsku 1771, og prentat sama ár, med tilheyrandi málverkstöblu, í
Kaupmannahöfn. It. Hra. Controll. Mohrs Isl. Nat. Hist. bls. 153, um kennimerki á
þessari gras-tegund framar ödrum). Gras þetta grær híngat og þángat í úti-högum, þur-
lendum engium, og skógar-runnum; er ágætt til fódurs fyrir naut- og saud-peníng; enda
dregr og annat hey af því lengi sætann daun, og velldr þat, að qvikfénadr glæpiz á at
eta fruggat hev, þótt slíkt sé honum næzta óhollt fódr; því at allt at einu sem manneskiurnar
fá brióst-erfiði af fruggunni, svo nemur hún einnig stadar í lúngum qvikflárins, þegar
til lengdar lætr.
Af phleum pratense8 vex fiöldi mikill á túnum, og líka með allvída utangards, einkum
hvar þurlendt er. Phleum nodosum og alpinum9 edr Fox-gras (Svo nefnir Hra. Mohr
þetta gras, í áminztri bók bls. 155.) eiga náskyllt við þessa tegund, og eru gérsemis fódr
til hvers er hafa þarf. Þessháttar gras-tegundir eru at mynd sem tóu-skott, og fyri því
nockurnveg auðþeckianlegar frá ödrum, jafnvel af ólærdum. At phleum arenarium10 vaxi
saman við Mel-staungina á Austrlandi, virdiz eigi ólíklegt.
M°-
I mýrum, veitum, vid lækiar-backa, og híngat og þángat annarstadar í votlendri jörð
á Islandi, vaxa 6 tegundir af grasi því, er heitir Scirpus* 11, sem Sunnmæríngar
kallaSkieg, en Norskir yfirhöfud Mýrasif, enværánefaSef, eða Þurra-sef,
eins ogjótar. Scirpus cespitosus12 brúkaz af Svíum til að þekia hús med, en peníngr
vill eigi eta þessar gras-tegundir (Siá Joh. Paulli Oeconomiske Urtebog S. 375.), og ættu
þær fyrir þá sök at úthýsaz, úr heima-löndum einkanliga, en þótt þéna kunni til þaks,
nema ef svín væru til á Islandi, þvíat þá yrdu þær, eins og hiá Svíum, hit bezta Fódr
fyrir þau bædi sumar og vetr, og væri þar þá ábata-von á annann hátt. Þaradauki vallda
gras-tegundir þessar þúfum, framar enn adrar. Þar eru liós merki, at hvar scirpi vaxa,
er jördin ófríóvsöm (fertilis), hvat er kémr af ofmiklum súrum og bitrum dreggium, er
fólgnir hafa verit ofr lengi íjördinni. Afþessum óþarfa dreggium dafna til dæmis scirpi11,
gandr-mosi13 (án efa ein tegund af HypnisI4), og önnur ótætis grös.
7) Hct á dönsku ,,Om Plantcrncs Bryllup og Trolovclsc“ (um brúðkaup og
trúloíun grasanna).
8) Vallarfoxgras.
9) Fjallafosgras (Phlcum commutatum).
10) (Sandfoxgras), vcx ckki hcrlcndis.
11) Skúfgras.
12) Mýrafinnungur, mýranál.
13) Gamburmosi (Rachomitrium).
14) Hypnis, af Hypnum, mosi.
7
97