Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Blaðsíða 86
BJARNI E. GUÐLEIFSSON:
*
UM NOKKRAR VEGALENGDIR
Á NORÐURLANDI
Líf okkar byggist mikið á viðskiptum milli þjóða og milli
einstaklinga. Bændur senda afurðir sínar í kaupstað og sækja
þangað ýmsar vörur og þjónustu. Þær byggðir sem eru fjærst
slíkum þjónustumiðstöðvum, svokallaðar jaðarbyggðir, sitja
því uppi með meiri framleiðslukostnað vegna staðsetningar-
innar. Víða stendur þó búskapur næst kaupstöðunum einnig
höllum fæti, en af allt öðrum ástæðum.
A Norðurlandi eru taldir 6 kaupstaðir, Sauðárkrókur,
Siglufjörður, Ólafsfjörður, Dalvík, Akureyri og Húsavík. I
hugum bænda eru þó kaupstaðirnir fleiri en þessir, og má til
dæmis nefna Hvammstanga, Blönduós, Skagaströnd, Hofsós,
Kópasker, Raufarhöfn og Þórshöfn. Á þessa staði, sem flestir
eru svokallaðir kauptúnahreppar án kaupstaðaréttinda, má
sækja ýmsan varning og venjulega almenna þjónustu, svo sem
viðgerðir og banka. Á flestum þeirra er einnig útgerð, iðnaður
og sláturhús. Samkvæmt þessari rúmu skilgreiningu á kaup-
stað, má segja að þeir séu alls 13 talsins á Norðurlandi.
Á seinni árum hafa risið nýir verslunar- og þéttbýlisstað-
ir, oftast umhverfis verslun, kaupfélagsútibú, skóla eða á af-
gerandi vegamótum. Hér má telja Staðarskála, Víðihlíð,
Varmalæk, Varmahlíð, Ketilás, Hauganes, Hjalteyri, Stein-
hólaskála, Svalbarðseyri, Grenivík, Fosshól, Laxárvirkjun,
Laugar, Reykjahlíð og Ásbyrgi. Þessir verslunarstaðir eru því
88