Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1982, Blaðsíða 118
tæki að sér efnagreiningar á fóðri og fóðurefnum fóðurstöðva
fyrir loðdýrarækt. Þetta mál er í athugun. Drjúgur tími fer
síðan í snatt á og frá skrifstofu og bókhald, en í því efni hefur
verið samið um aðstoð a.m.k. til að byrja með.
Að venju fellur ætíð nokkuð til af rannsóknum fyrir ýmsa
aðila aðra en bændur.
Nýtt húsnœði.
Eins og menn vita flutti félagið með starfsemi sína í húsnæði
BSE að Óseyri 2, Akureyri, sl. haust. Þessu fylgdi að sjálfsögðu
nokkur kostnaður, en vonast er til að hann skili sér í um margt
betri starfsaðstöðu og nánara sambandi við stéttarbræður.
Búnaðarbókasafnið á Akureyri, en auk Ræktunarfélagsins
stendur BSE og Tilraunastöðin að því, flutti einnig í þetta
húsnæði. Þá er brýnt og aðkallandi verkefni að koma því í vel
nothæft form, en til þessa hefur skort bæði tíma og fjármagn.
Starfsfólk.
Bjarni E. Guðleifsson er í 3/4 stöðu hjá félaginu, Gunnfríður
Hreiðarsdóttir í fullu starfi allan daginn, Matthildur Egils-
dóttir sem var í hálfs dags starfi, hætti 31/12 1981, en verður
hjá okkur aftur í haust. Anna Björnsdóttir vann frá því í
septemberbyrjun 1981 til áramóta, en dóttir hennar, Sigrún,
leysti hana af í um mánaðartíma vegna veikinda önnu.
Sigurlaug Arngrímsdóttir sá um hreingerningar til 30/4
1981 en þá tók Guðborg Jónsdóttir við því starfi.
Þá hefur Jóhannes Sigvaldason séð um uppgjör reikninga
ársins 1981 og verið innan handar með fleira.
Undirritaður þakkar þessu fólki sérlega vel unnin störf og
ágæt samskipti. Sömuleiðis eiga allir, ráðunautar, bændur og,
síðast en ekki síst, stjórn félagsins, miklar þakkir skyldar fyrir
ágætt samstarf.
120