Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1967, Blaðsíða 8
LANDSBÓKASAFNIÐ 1966
Sveinn Sigurðsson, fyrrum ritstjóri, færði safninu að gjöf frá Björgu Guðmunds-
dóttur Syðra-Firði í Lóni handrit að kvæðum og broti úr leikriti eftir bróður henn-
ar, Rögnvald Guðmundsson stud. theol. (d. 23. maí 1917), með hendi höfundar.
Kvenfélag Unilarasafnaðarins í Winnipeg sendi safninu gjörðabækur sínar í sex
bindum, og taka þær yfir árabilið 1904-1960.
Sr. Benjamín Kristjánsson afhenti safninu ýmis handril, er hann hafði aflað vest-
an hafs, svo sem fundabækur þriggja félaga Unitarasafnaðarins islenzka í Winnipeg,
annarra en kvenfélagsins; handrit Jakobs J. Normans skálds í Wynyard í Saskatche-
wan að kveðskap hans, ritgerðum og bréfum auk bréfa til hans sjálfs; kirkjuræður
sr. Björns B. Jónssonar, prests íslenzk-lúterska safnaðarins í Winnipeg.
Dr. Þorsteinn Þorsteinsson, fyrrv. hagstofustjóri, gaf nokkur handrit og gögn úr
búi tengdaföður síns, Geirs rektors Zoega, varðandi sr. Arna Helgason, Helga E.
Helgason skólastjóra, Guðmund Björnsson landlækni, frú Herdísi Benedictsen o. fl.
Klemenz Þorleifsson kennari gaf ævisögu Brvnjólfs biskups Sveinssonar eftir sr.
Torfa Jónsson í Gaulverjabæ og Lífssögu Þórðar Daðasonar, sr. Jóns Torfasonar og
konu hans, Sigríðar Björnsdóttur.
Árni Helgason ræðismaður í Chicago gaf kvæði og vísur eftir Kristján N. Júlíus
með hendi Jóhannesar Björnssonar kennara í Chicago, en þeim fylgja einnig bréf
frá skáldinu til Jóhannesar.
Indriði Indriðason ættfræðingur gaf líkprédikun sr. Jóns Ásgeirssonar yfir sr.
Jóni Sigurðssyni í Holli í Onundarfirði.
Sigurður Þ. Björnsson fornbókasali í Reykjavík gaf safninu handrit með Rímum
af Tistran og Indiönu eftir Sigurð Breiðfjörð, og Heimspekingaskóla Guðmundar
Bergþórssonar.
Skúli Helgason, fyrrv. safnvörður, afhenti m. a. handrit Kristins G. Grímssonar
verkamanns í Hafnarfirði (d. 1953), endurminningar hans, Ijóðmæli, hugleiðingar
o. fl.
Iláskólabókasafnið í Ósló gaf ljósrit sendibréfa nokkurra Islendinga til Björn-
stjerne Björnson, ennfremur eins bréfs Jóns Sigurðssonar til Hagbards Emanuels
Berner. — Harald L. Tveter&s yfirbókavörður afhenti ljósritin, er hann var hér á ferð
í júnímánuði 1966.
Jóhann Gunnar Ólafsson bæjarfógeti gaf gamanleikinn Getjón eftir Sigurð And-
résson og Sölva Thorsteinsson. Mun leikurinn vera fyrsta revía á Islandi og var leik-
inn á ísafirði 1880.
Davíð Björnsson bóksali í Winnipeg jók enn það safn eiginhandrita, er hingað
var komið áður, en sendi jafnframt nokkur handrit annarra, svo sem Jónasar Páls-
sonar píanóleikara ásamt úrklippubók með kvæðum, greinum og ræðum Jónasar, er
ekkja hans, íiú Emily Pálsson í Vancouver, hafði sent Davíð. Davíð sendi safninu
einnig vélritað kvæða- og vísnasafn Páls Guðmundssonar skálds í Winnipeg, en
handrit kvæða hans voru að nokkru komin áður til safnsins um hendur Jónbjarnar
Gíslasonar á Akureyri.